Heimsókn fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjörður
Málsnúmer 1003075
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 509. fundur - 11.03.2010
Lögð fram drög að samningi á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um aukið samstarf héraðanna á sviði þekkingarstarfsemi. Markmið samningsins er að efla núverandi samstarf og samráð varðandi eflingu þekkingarstarfsemi í framangreindum sveitarfélögum.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að vinna frekar að málinu.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 510. fundur - 18.03.2010
Erindið áður á 509. fundi byggðarráðs. Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um aukið samstarf á sviði þekkingarstarfsemi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Sveitarfélagins Skagafjarðar.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að viljayfirlýsingin verði staðfest. Undirritun hennar fer fram í dag með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.
Atvinnu- og ferðamálanefnd - 59. fundur - 18.03.2010
Lögð fram til kynningar drög að viljayfirlýsingu sem undirrituð verður í dag milli forsvarsmanna Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um samstarf á sviði uppbyggingar á þekkingarstarfsemi.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 261. fundur - 30.03.2010
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 261. fundur - 30.03.2010
Viljayfirlýsingin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla 510. fundar byggðaráðs staðfest á 261. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 261. fundur - 30.03.2010
Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 261. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Lögð fram til kynningar hugmynd frá Skúla Skúlasyni um mögulegt samstarf sveitarfélaganna Hornafjarðar og Skagafjarðar varðandi uppbyggingu þekkingarsamfélags.
Guðmundur ræðir málið við Byggðaráð.