Fara í efni

Kynning á atvinnuuppbyggingu í Norðurþingi

Málsnúmer 1311002

Vakta málsnúmer

Atvinnu- og ferðamálanefnd - 93. fundur - 01.11.2013

Formaður kynnti boð frá Norðurþingi um heimsókn og kynningu á atvinnuuppbyggingu og undirbúningi stærri verkefna í sveitarfélaginu.
Nefndin samþykkir að þekkjast boðið. Sigfúsi Inga Sigfússyni verkefnisstjóra er falið að finna heppilega dagsetningu til heimsóknarinnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 308. fundur - 20.11.2013

Afgreiðsla 93. fundar atvinnu- og ferðamálanefndar staðfest á 308. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 1. fundur - 27.11.2013

Fulltrúar í atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd, ásamt fleiri fulltrúum sveitarfélagsins, kynntu sér uppbyggingu í atvinnu- og ferðamálum í sveitarfélaginu Norðurþingi. Nefndarmenn þakkar heimamönnum fyrir góðar móttökur og gagnlega og upplýsandi yfirferð á málaflokknum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 309. fundur - 11.12.2013

Afgreiðsla 1. fundar atvinnu- menningar og kynningarnefndar staðfest á 309. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.