Stækkun og flutningur leikskólans Birkilundar í Varmahlíð
Málsnúmer 1402261
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 652. fundur - 20.02.2014
Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs ásamt Valdimar Sigmarssyni og Sigríði Svavarsdóttur sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Kynntar voru fyrirhugaðar breytingar á Varmahlíðarskóla vegna flutnings starfsemi leikskólans Birkilundar í húsnæði grunnskólans.
Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 24. fundur - 26.02.2014
Auk nefndarmanna voru foreldrar og starfsmenn leik-, og grunnskólans í Varmahlíð boðaðir til fundarins. Kynntar voru hugmyndir að flutningi leikskólans Birkilundar í húsnæði grunnskólans.
Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 25. fundur - 06.03.2014
Framhald umræðna um mögulegar lausnir á húsnæðisvanda svo koma megi til móts við biðlista við leikskólann og kröfur um aukið rými fyrir starfsemi hans. Nefndin samþykkir að vinna frekar að kostnaðarútreikningum á þeim kostum sem til greina koma. Miðað við stöðu mála telur nefndin ekki möguleika á að leysa úr biðlista við leikskólann, nema dagforeldrar fáist til starfa á svæðinu.
Framkvæmdaráð Skagafjarðar - 142. fundur - 18.03.2014
Rætt um áframhaldandi vinnu vegna stækkun leikskólans í Varmahlíð.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 312. fundur - 20.03.2014
Afgreiðsla 652. fundar byggðaráðs staðfest á 312. fundi sveitarstjórnar 20. mars 2014 með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 312. fundur - 20.03.2014
Fundargerð 24. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 312. fundi sveitarstjórnar 20. mars 2014 með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 312. fundur - 20.03.2014
Fundargerð 25. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 312. fundi sveitarstjórnar 20. mars 2014 með níu atkvæðum.