Tónlistarhátíðin Gæran 2014
Málsnúmer 1405058
Vakta málsnúmerAtvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 8. fundur - 12.05.2014
Tekin fyrir umsókn um styrk frá forsvarsmönnum tónlistarhátíðarinnar Gærunnar. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar þessu ágæta framtaki og hvetur aðstandendur hátíðarinnar til að halda áfram uppbyggingu og þróun hátíðarinnar. Nefndin samþykkir að veita kr. 250.000,- til hátíðarinnar og beinir því til starfsmanna nefndarinnar að aðstoða eftir föngum við undirbúning hennar.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 316. fundur - 11.06.2014
Afgreiðsla 8. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 316. fundi sveitarstjórnar 11. júní 2014 með níu atkvæðum.