Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir fullum vilja sínum til að taka þátt í því mikilvæga og aðkallandi verkefni er viðkemur komu flóttamanna frá Sýrlandi til Íslands. Byggðarráð felur sveitarstjóra að setja sig í samband við fulltrúa velferðarráðuneytisins og fá nánari upplýsingar um verkefnið og kanna með hvaða hætti Sveitarfélagið Skagafjörður getur orðið að liði og kynna fyrir ráðinu á næsta fundi þess. Byggðarráð skorar jafnframt á önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að setja sig í samband við fulltrúa velferðarráðuneytisins og fá nánari upplýsingar um verkefnið og kanna með hvaða hætti Sveitarfélagið Skagafjörður getur orðið að liði og kynna fyrir ráðinu á næsta fundi þess.
Byggðarráð skorar jafnframt á önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama.