Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 854

Málsnúmer 1901016F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 380. fundur - 06.02.2019

Fundargerð 854. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 380. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 854 Lagt fram bréf frá Kiwanisklúbbnum Freyju, Skagafirði, dagsett 21. janúar 2019 þar sem klúbburinn óskar eftir samstarfi við Sveitarfélagið Skagafjörð um að koma upp Freyju-fjölskyldugarði Skagafjarðar. Óskað er eftir samstarfi í þeirri mynd að finna góða staðsetningu fyrir sumarið 2019. Klúbburinn sjái um fjárfestingu í leiktækjum en viðhald svæðisins verði í höndum sveitarfélagsins. Markmiðið með garðinum er að hlúa að fjölskyldum og efla útiveru og hreyfingu og um leið stuðla að ánægjulegri samveru foreldra og barna.
    Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 854. fundar byggðarráðs staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 6. febrúar 2019 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 854 Lagður fram tölvupóstur úr máli 1901263, dagsettur 18. janúar 2019 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Óskað er eftir umsögn um umsókn Sigurlínu Erlu Magnúsdóttur, kt. 111091-3159 um tækifærisleyfi skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 vegna þorrablóts í Félagsheimili Rípurhrepps þann 23. febrúar 2019.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 854. fundar byggðarráðs staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 6. febrúar 2019 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 854 Undir þessum dagskrárlið sátu fundinn Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, Jón Þór Þorvaldsson arkitekt og Steinunn Jónsdóttir frá Úti Inni arkitektastofu. Kynntar voru grunnteikningar að nýjum tveggja deilda leikskóla sem byggður verður við grunnskólann á Hofsósi.
    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að kynna teikningarnar fyrir hlutaðeigandi starfsmönnum leik- og grunnskóla. Stefnt er að þeirri vinnu verði lokið fyrir næsta fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 854. fundar byggðarráðs staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 6. febrúar 2019 með níu atkvæðum.