Fara í efni

Veitunefnd - 62

Málsnúmer 1909021F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 389. fundur - 16.10.2019

Fundargerð 62. fundar veitunefndar frá 25. september 2019 lögð fram til afgreiðslu á 387. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson kvaddi sér hljóðs.
  • Veitunefnd - 62 Farið var yfir stöðu framkvæmda við lagningu hitaveitu og ljósleiðara frá Hofsósi að Neðra Ási og Ásgarði. Lagningu stofnlagna er lokið og er vinna við plægingu á heimtaugum hafin. Vinna við sökkla og steyptar plötur vegna dæluhúsa á Hofsósi og Sleitustöðum er einnig hafin. Dæluhúsin verða svo hífð á staðinn þegar frágangi á steyptri plötu er lokið. Bókun fundar Afgreiðsla 62. fundar veitunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 62 Lögð var fram bókun byggðarráðs frá 21. ágúst sl. þar sem byggðarráð samþykkti að fela veitunefnd að kostnaðargreina og vinna að hönnun hitaveitu í þeim hluta Hegraness sem ekki er þegar tengdur við hitaveitu. Mælst var til þess að þessari vinnu verði hraðað sem kostur er.
    Nefndin samþykkir að unnið verði að uppfærðri kostnaðargreiningu og hönnun en gróf drög að hönnun og kostnaðaráætlun liggja þegar fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 62. fundar veitunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 62 Lögð voru fram til umsagnar drög að jafnréttisstefnu og aðgerðaráætlun jafnréttisstefnu. Fjallað var um áætlunina og komu nefndarmenn með nokkrar ábendingar sem þurfa frekari umræðu áður en endanleg áætlun er samþykkt. Bókun fundar Afgreiðsla 62. fundar veitunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 62 Tekið fyrir erindi frá FISK Seafood ehf. dags. 16. ágúst 2019 varðandi samruna Hólalax og FISK Seafood, þar sem óskað er eftir að veitunefnd fjalli að nýju um réttindi og skyldur Hólalax í kjölfar samruna fyrirtækjanna. Í bréfinu er tilgreint að FISK Seafood hafi með samrunanum yfirtekið öll réttindi og skyldur Hólalax, þ.m.t. varðandi orkuviðskipti.
    Veitunefnd fellst á það eftir skoðun málsins að réttindi og skyldur Hólalax gagnvart Skagafjarðarveitum fylgi með samruna fyrirtæksins við FISK Seafood en óskar jafnframt eftir viðræðum við fyrirtækið á grundvelli 8. greinar samnings um orkuviðskipti frá 1991.
    Bókun fundar Afgreiðsla 62. fundar veitunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 62 Lögð voru fram drög að kostnaðaráætlun vegna lagningu heimæðar að Fagraholti í Hofsstaðaplássi.
    Sviðsstjóra falið að vinna áfram að málinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 62. fundar veitunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 62 Lögð voru fram til kynningar drög að samkomulagi við Kaupfélag Skagfirðinga varðandi styrk Kaupfélagsins til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli.
    Nefndin lýsir ánægju sinni með samkomulagið og þátttöku KS í verkefninu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 62. fundar veitunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 62 Farið var yfir stöðu lagningu ljósleiðara samhliða rafstrengs RARIK á svæðinu frá Ásgarði að Vatnsleysu. Lagningu stofnstrengs samhliða rafstreng er lokið og unnið er að lagningu heimtauga. Bókun fundar Afgreiðsla 62. fundar veitunefndar staðfest á 389. fundi sveitarstjórnar 16. október 2019 níu atkvæðum.