Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 367

Málsnúmer 2002017F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 394. fundur - 11.03.2020

Fundargerð 367. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 25. febrúar 2020 lögð fram til afgreiðslu á 394. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir, með leyfi varaforseta, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 367 Vinnufundur vegna heildarendurskoðunar á aðalskipulagi, undirbúningur undir vinnslutillögu og íbúafundi. Vinnugögn fyrir fundinn eru uppfærðir þéttbýlisuppdrættir, drög að sveitarfélagsuppdrætti, skýringarmyndir fyrir landbúnaðar- og verndarsvæði, efnistökusvæði og ferðaþjónustustaði ásamt drögum að flokkun landbúnaðarlands og skilmálum fyrir það. Stefán Gunnar Thors sat fundinn undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 367. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 394. fundi sveitarstjórnar 11. mars 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 367 Lóðin Skarð land landnúmer 207858 er í eigu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og er samkvæmt þinglýstu lóðarblaði frá 18. maí 2006 10.563 fermetrar. Fyrir liggur nýtt lóðarblað dagsett 20. febrúar 2020 sem gerir grein fyrir breyttri lóðarstærð. Lóðin verður eftir breytingu 3534 fermetrar. Breytingin er tilkomin vegna fyrirhugaðrar stækkunar á lóðinni Skarðseyri 5. Samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að ganga frá málinu með þessum hætti. Bókun fundar Afgreiðsla 367. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 394. fundi sveitarstjórnar 11. mars 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 367 Fyrir liggur tillaga að breyttri stærð lóðarinnar Skarðseyri 5, lóð Steinullarverksmiðjunnar hf. Samkvæmt lóðarleigusamningi frá 12. desember 1984 er lóðin 24.380 m2 en breytist samkvæmt fyrirliggjandi lóðarblaði sem dagsett er 20. febrúar 2020 og verður 33.203 m2.
    Samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning ganga frá málinu með þessum hætti.
    Bókun fundar Afgreiðsla 367. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 394. fundi sveitarstjórnar 11. mars 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 367 Jón Einar Kjartansson kt. 311068-5209 sækir f.h. Hlíðarendabúsins ehf. kt. 500717-1300 um heimild skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar til að skipta 14072 m² lóð fyrir frístundahús úr landi jarðarinnar Miklabæjar, landnúmer L146569 ásamt því að nefna lóðina Miklibær 4. Framlagður hnitsettur afstöðuuppdráttur gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Uppdrátturinn er númer S04 í verki 760502, dagsettur 31. október 2019.
    Óskað er eftir að lóðin verði leyst úr landbúnaðarnotum.Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja landnúmerinu 146569. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 367. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 394. fundi sveitarstjórnar 11. mars 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 367 100. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar.

    Bókun fundar Afgreiðsla 367. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 394. fundi sveitarstjórnar 11. mars 2020 með níu atkvæðum.