Byggðarráð Skagafjarðar - 930
Málsnúmer 2009009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 402. fundur - 23.09.2020
Fundargerð 930. fundar byggðarráðs frá 16. september 2020 lögð fram til afgreiðslu á 402. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Byggðarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Byggðarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar ákvað á fundi sínum þann 6. maí 2020 að skipa starfshóp um aðgerðir til eflingar nýsköpunar í Skagafirði. Starfshópurinn lagði fram skýrslu sína á fundi byggðarráðs þann 26. ágúst 2020.
Málið rætt og samþykkt að vinna frekar að þeim hugmyndum sem upp komu á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Lagður fram viðauki númer 7 við fjárhagsáætlun ársins 2020. Meginefni viðaukans er hækkun launakostnaðar vegna kjarasamningsbreytinga sem hafa orðið á árinu 2020 með nýjum kjarasamningum. Launahækkunin er áætluð 276 mkr. en upp í hana var til óráðstafaður launapottur sem gengur á móti að fjárhæð 136 mkr., þannig að hækkun launakostnaðar í viðaukanum er 140 mkr. Einnig er gerðar breytingar á tekjum um 49 mkr. og munar þar mest lækkun tekna í Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ út af Covid-19, 40 mkr. Lagt er til að þessum breytingum í rekstri verði mætt með nýrri lántöku að fjárhæð allt að 191.227 þús.kr. Einnig er í þessum viðauka leiðrétt upphafsstaða áætlunar efnahags til samræmis við ársreikning 2019.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til afgeiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa málinu til liðar nr. 14 "Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2020." Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Lögð fram ódagsett áskorun frá stjórn Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa til dómsmálaráðherra, alþingismanna og sveitarstjórnarfólks.
Samtök íslenskra handverksbrugghúsa skora á dómsmálaráðherra að leggja frumvarp um netverslun með áfengi fram á nýjan leik og tryggja íslenskum handverksbrugghúsum rétt til að selja gestum sínum vörur á staðnum. Íslensk handverksbrugghús eru nú á þriðja tug talsins. Þau tryggja um 200 manns störf í sinni heimabyggð og skila tugum milljóna í skatttekjur á ári. Brugghúsin framleiða vandaðar og eftirsóttar íslenskar vörur, draga til sín fjölda íslenskra og erlendra gesta og eru mikil lyftistöng fyrir lítil samfélög í nærumhverfi sínu, sem nokkur teljast til brothættra byggða. Samtökin skora því á ráðherra, alþingismenn og sveitarstjórnfólk að standa með íslenskum handverksbrugghúsum og standa þannig vörð um störf um land allt, vandaða íslenska framleiðslu og íslenskar skatttekjur. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum. - .6 2009063 Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. september 2020 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 175/2020, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)". Umsagnarfrestur er til og með 18.09.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. september 2020 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 173/2020, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðistjórn grásleppu o.fl.)).". Umsagnarfrestur er til og með 18.09.2020.
Byggðarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. september 2020 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 177/2020, "Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993, með síðari breytingum (endurskoðun samnings um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða)." Umsagnarfrestur er til og með 18.09.2020.
Byggðarráð tekur jákvætt í frumvarpið. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 2. júlí 2020 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi forsendur fjárhagsáætlana 2021-2024. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 930 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 8. september 2020 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem tilkynnt er um að fjármálaráðstefna sveitarfélaga fari fram með breyttu sniði í ár. Dagana 1. og 2. október 2020 verður hún alfarið á netinu í tvo tíma hvorn dag. Í kjölfarið verða svo vikulegir fundir út október þar sem farið verður í sérstök málefni sem að tengjast fjármálum sveitarfélaga. Þeir fundir verða kynntir sérstaklega þegar nær dregur. Bókun fundar Afgreiðsla 930. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.