Fara í efni

Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 26

Málsnúmer 2011008F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 404. fundur - 26.11.2020

Fundargerð 26. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks frá 19. nóvember 2020 lögð fram til afgreiðslu á 404. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 26 Steinn Leó Sveinsson fór yfir væntanlegar framkvæmdir annars áfanga við byggingu Sundlaugar Sauðárkróks. Fram kom að útboðsgögn vegna jarðvegsvinnu eru tilbúin og verður verkið boðið út á næstu dögum. Bókun fundar Fundargerð 26. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 26 Ingvar Páll Ingvarsson verkefnastjóri fór yfir framkvæmdakostnað fyrri áfanga byggingar Sundlaugar Sauðárkróks. Verkið fór nokkuð fram úr fjárhagsáætlun ársins.
    Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks óskar eftir því við byggðarráð að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2020 að fjárhæð 39 milljónir króna vegna framkvæmdarinnar.
    Bókun fundar Fundargerð 26. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks staðfest á 404. fundi sveitarstjórnar 26. nóvember 2020 með níu atkvæðum.