Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 946

Málsnúmer 2012021F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 406. fundur - 20.01.2021

Fundargerð 946. fundar byggðarráðs frá 23. desember 2020 lögð fram Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 946 Lagt fram ódagsett bréf þar sem stjórn Markaðsstofu Norðurlands skorar á sveitarfélög að styðja vel við rekstur skíðasvæða. Skíðasvæði gegna mikilvægu hlutverki í vetrarferðaþjónustu. Byggðarráð þakkar fyrir brýninguna og óskar skíðasvæðum á Norðurlandi velgengi í skíðavertíðinni sem framundan er. Bókun fundar Afgreiðsla 946. fundar byggðarráðs staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 946 Lagður fram samningur á milli Bæjartúns hses og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um stofnframlag vegna byggingar leiguíbúða við Freyjugötu á Sauðárkróki. Byggðarráð samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að ganga frá honum. Byggðarráð vísar samningnum jafnframt til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins "Samningur um stofnframlag á grundvelli laga um almennar íbúðir" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 946 Lagður fram tölvupóstur úr máli 2012119, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 14. desember 2020. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007, svo og 26. gr. reglug. nr. 1277/2016 er óskað umsagnar um umsókn dags. 07.12. 2020 frá Guðrúnu Sonju Birgisdóttur, Vogum, 565 Hofsósi, f.h. Retro ehf., kt.691216-1010, um leyfi til að reka veitingastað í flokki III, að Baldurshaga fnr. 214-3729, 565 Hofsós.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.


    Bókun fundar Afgreiðsla 946. fundar byggðarráðs staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 946 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. desember 2020 úr máli 2012121, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007, svo og 26. gr. reglug. nr. 1277/2016, er óskað eftir umsögn um umsókn dags. 30.11. 2020 frá Peony Wiedemann, Hellulandi, 551 Sauðárkrókur, f.h. Helluland 551 ehf, um leyfi til að reka gististað í flokki II að Hellulandi, fnr.2142383, 551 Sauðárkróki.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 946. fundar byggðarráðs staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 946 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 17. desember 2020 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi lokaskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning. Bókun fundar Afgreiðsla 946. fundar byggðarráðs staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 946 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 15. desember 2020 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna COVID-19. Bókun fundar Afgreiðsla 946. fundar byggðarráðs staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.