Fara í efni

Innritunarreglur fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar

Málsnúmer 2208292

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 6. fundur - 18.10.2022

Lögð fram drög að innritunarreglum fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar.

Byggðarráð Skagafjarðar - 19. fundur - 26.10.2022

Lagðar fram innritunarreglur fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar.
Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Visað frá 19. fundi byggaðrráðs þann 26. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar þannig bókað:

"Lagðar fram innritunarreglur fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar. Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur"

Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.