Fara í efni

Reglur um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar

Málsnúmer 2208298

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 6. fundur - 18.10.2022

Drög að reglum um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar.

Byggðarráð Skagafjarðar - 19. fundur - 26.10.2022

Lagðar fram reglur um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar.
Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Vísað frá 19. fundi byggðarráðs frá 26. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar þannig bókað:

"Lagðar fram reglur um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar. Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.