Fara í efni

Verklagsreglur vegna barna starfsfólks í leikskólum Skagafjarðar

Málsnúmer 2208299

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 6. fundur - 18.10.2022

Drög að verklagsreglum vegna barna starfsfólks í leikskólum í Skagafirði lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar.

Byggðarráð Skagafjarðar - 19. fundur - 26.10.2022

Lagðar fram verklagsreglur vegna barna starfsfólks í leikskólum í Skagafirði. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Vísað frá 19. fundi byggðarráðs frá 26. október sl. þannig bókað:
Lagðar fram verklagsreglur vegna barna starfsfólks í leikskólum í Skagafirði. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi sveitarstjórnar. Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Framlagðar reglur bornar upp til afgreiðslu og samþykktar með níu atkvæðum.