Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 18

Málsnúmer 2210019F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Fundargerð 18. fundar byggðarráðs frá 19. okótber 2022 lögð fram til afgreiðslu á 6. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Sveinn Þ Úlfarsson, Einar E Einarsson og Gisli Sigurðsson, kvöddu sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. október 2022 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga þann 11. nóvember 2022 í Sveitarfélaginu Ölfus. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. október 2022 frá Umhverfisstofnun til skilgreindra haghafa að gerð áætlunar um loftgæði 2022-2033. Umhverfisstofnun var falið að endurskoða Áætlun um loftgæði á Íslandi 2017-2029 - Hreint loft til framtíðar, samkvæmt tilskipun 2008/50/EB um gæði andrúmsloft og hreinna loft í Evrópu. Þessi tilskipun var innleidd hér á landi með lögum nr. 144/2013 um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Umhverfisstofnun, heilbrigðisnefndir og stýrihópur aðgerðaráætlunarinnar hafa unnið drög að nýjum aðgerðum fyrir árin 2022-2033 sem lögð eru fyrir fundinn. Óskað er eftir að drögin verði yfirfarin og athugasemdir eða tillögur að breytingum sendar stofnuninni.
    Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Lögð fram tillaga að viðauka 3 við fjárhagsáætlun ársins 2022. Viðaukinn felur í sér verðlagsbreytingar á langtímaskuldum sveitarfélagsins og stofnana þess. Verðlagshækkunin er áætluð 240.611 þús.kr. Einnig er gert ráð fyrir auknu framkvæmdafé til gatnagerðar að fjárhæð 12.000 þkr., til hafnarframkvæmda 36.615 þkr. og borunar eftir heitu vatni í Varmahlíð 30.000 þkr. Viðaukanum verði mætt með aukinni lántöku að fjárhæð 100 mkr.
    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Skagafjörður (5716), fjárhagsáætlun 2022, viðauki 3" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Undir þessum lið komu ráðgjafarnir Haraldur Líndal Haraldsson og Arnar Haraldsson til fundar við byggðarráð í upphafi vinnu þeirra við úttekt á rekstri sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Á undanförnum árum hefur verið unnið að því í gegnum verkefnið Ísland ljóstengt að koma á ljósleiðaratengingu í dreifbýli utan markaðssvæða í Skagafirði. Því verkefni er nú lokið. Gsm og tetra-samband í Skagafirði er hins vegar víða stopult eða ekki til staðar. Á þetta nokkuð víða við, t.a.m. í inndölum þar sem m.a. er stundaður landbúnaður og ferðaþjónusta, auk þess sem þessi svæði laða að sér marga gesti til útivistar. Enn er því óleyst það mikilvæga verkefni að tryggja fjarskiptasamband fyrir almenning til neyðar- og viðbragðsaðila gegnum 112.

    Byggðarráð Skagafjarðar lýsir yfir áhyggjum af lélegu fjarskiptasambandi víða um Skagafjörð sem dregur úr öryggi þeirra sem búa á svæðinu eða eiga leið um það. Í óveðri sem gekk yfir landið fyrir skemmstu kom sú staða upp að rafmagn fór af hluta Skagafjarðar og í kjölfarið datt farsímasamband einnig út þannig að íbúar á svæðinu voru með öllu sambandslausir við umheiminn. Áður höfðu íbúar símasamband í sambærilegum aðstæðum í gegnum gamla koparvírinn sem ekki þurfti sértengingu við rafmagn til að virka.

    Byggðarráð hvetur Neyðarlínuna og ríkisvaldið til að tryggja fullnægjandi fjarskiptasamband með uppsetningu fleiri senda og tryggara varaafls, auk þess sem Tetra-sambandið verði stórlega bætt til að auka öryggi íbúa og ferðamanna í landshlutanum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 6. október 2022 þar sem dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 182/2022, "Breytingar á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi". Umsagnarfrestur er til og með 24.10.2022. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7. október 2022 þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 188/2022, "Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir". Umsagnarfrestur er til og með 21.10.2022. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Lögð fram til kynningar staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga fyrir árin 2022 og 2023 sem unnin hefur verið af hag- og upplýsingasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 18 Lagt fram til kynningar bréf frá innviðaráðuneyti, dagsett 5. október 2022, þar sem tilkynnt er um að sunnudaginn 20. nóvember 2022, verði haldinn hér á landi alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa. Að þessu sinni verður dagurinn helgaður óvörðum vegfarendum og minningarviðburðir verða víða um landið. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.