Byggðarráð Skagafjarðar - 77
Málsnúmer 2312016F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 22. fundur - 17.01.2024
Fundargerð 77. fundar byggðarráðs frá 20. desember 2023 lögð fram til afgreiðslu á 22. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 77 Til fundarins komu fulltrúar frá knattspyrnudeild Tindastóls og meistaraflokkum deildarinnar, þau Adam Smári Hermannsson og María Jóhannesdóttir, til að ræða um málefni sem snerta starfsemi deildarinnar.
Byggðarráð samþykkir að fá frístundastjóra inn á næsta fund ráðsins til að ræða um mögulegar lausnir á ýmsu sem varðar málefni deildarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 77. fundar byggðarráðs staðfest á 22. fundi sveitarstjórnar 17. janúar 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 77 Til fundarins kom Ólöf Ýrr Atladóttir og í gegnum Teams var Arnar Þór Árnason, eigendur Sótahnjúks ehf. en félagið sótti um rekstur sundlaugarinnar að Sólgörðum í Fljótum frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2026.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna drög að nýjum samningi við Sótahnjúk ehf. og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 77. fundar byggðarráðs staðfest á 22. fundi sveitarstjórnar 17. janúar 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 77 Lagður fram viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2023-2026. Viðaukinn inniheldur meðal annars aukin framlög til rekstrar vegna kjarasamningsbundinna launahækkana, auk framlags vegna rekstrarúttektar HLH ráðgjafar. Einnig er gert ráð fyrir auknum tekjum vegna hækkunar útsvarstekna, hækkun framlaga frá Jöfnunarsjóði og hækkun tekna vegna fasteignaskatts og lóðarleigu. Þá eru framkvæmdir sem ekki var unnt að ráðast í á árinu 2023 lækkaðar sem þeim nemur og fjármagn flutt yfir á aðrar framkvæmdir eða handbært fé. Að lokum er gert ráð fyrir breytingum á fjárhagsáætlun vegna framkvæmda við nýtt urðunarhólf hlutdeildarfélagsins Norðurár bs. í Stekkjarvík og hækkana á lánum félagsins og lækkun handbærs fjár þess af sömu sökum. Hlutdeild Skagafjarðar í Norðurá bs. er 69,8%.
Lagt er til að viðaukanum verði mætt með lækkun handbærs fjár hjá sveitarfélaginu, lækkunar handbærs fjár hjá Norðurá bs. og lántöku hjá Norðurá bs. Ekki er gert ráð fyrir lántöku hjá sveitarfélaginu Skagafirði í viðaukanum.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2023-2026 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2023, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 77 Lagðar fram til kynningar upplýsingar um samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk dagsett 15. desember 2022. Hækkun útsvarsálagningar sveitarfélaga um 0,23% vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Þar sem að ríkið mun lækka tekjuskattsálagningu sína um samsvarandi hlutfall munu skattgreiðendur ekki verða fyrir skattahækkun eða lækkun vegna þessa, að því gefnu að sveitarfélög hækki útsvarsálagninguna. Áætlað er að þessi breyting auki tekjur inn í málaflokkinn á landsvísu um 6 ma.kr. á næsta ári.
Byggðarráð Skagafjarðar vill árétta að þrátt fyrir þessa breytingu af hálfu ríkisins vantar verulega upp á að málaflokkurinn verði fjármagnaður að fullu eins og ríkinu ber skylda til. Bókun fundar Afgreiðsla 77. fundar byggðarráðs staðfest á 22. fundi sveitarstjórnar 17. janúar 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 77 Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir byggðarráð Skagafjarðar að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97% og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Erindið var fullafgreitt á fundi sveitarstjórnar 20. desember 2023 -
Byggðarráð Skagafjarðar - 77 Lagt fram erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dags. 14. desember 2023, þar sem fram kemur að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur óskað eftir því að samtökin taki að sér að samræma sjónarmið sveitarfélaga til samningsdraga vegna stækkunar verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar framkomnum samningsdrögum enda um löngu tímabæra framkvæmd að ræða þar sem í mikið óefni er komið í verknámi skólans vegna plássleysis. Byggðarráð minnir á að stækkunin er í raun framkvæmd sem slegið var á frest árið 2008 þegar verknámsaðstaða skólans var aðeins stækkuð um u.þ.b. þriðjung þess sem fyrirhuguð stækkun átti að vera.
Byggðarráð undrast þá miklu óvissu sem ennþá er í kostnaðaráætlun um viðbyggingu verknámshúss FNV sé litið til samningsdraga og hvetur Framkvæmdasýsluna til að vinna nákvæmari áætlun, bæði m.t.t. kostnaðar og einnig tímaramma framkvæmda. Byggðarráð samþykkir engu að síður þátttöku í verkefninu og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga áður en undirritaður verður samningur þar að lútandi. Bókun fundar Afgreiðsla 77. fundar byggðarráðs staðfest á 22. fundi sveitarstjórnar 17. janúar 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 77 Lagt fram til kynningar bréf, dags. 13.12. 2023, frá Dattaca Labs, þar sem kynnt er persónuverndarþjónusta fyrirtækisins. Bókun fundar Afgreiðsla 77. fundar byggðarráðs staðfest á 22. fundi sveitarstjórnar 17. janúar 2024 með níu atkvæðum.