Landbúnaðarnefnd - 14
Málsnúmer 2401003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 22. fundur - 17.01.2024
Fundargerð 14. fundar landbúnaðarnefndar frá 10. janúar 2024 lögð fram til afgreiðslu á 22. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðarnefnd - 14 Lögð fram ódagsett umsókn um stofnun lögbýlis á jörðinni Vatnsleysu í Skagafirði, frá Rúnari Þór Guðbrandssyni og Huldu Sóllilju Aradóttur, í gegnum félagið Trostan ehf., kt. 470103-3450, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis á jörðinni Vatnsleysu 2, landnúmer 235731. Áformað er að nýta jörðina fyrir hrossarækt. Veðbókarvottorð jarðarinnar fylgir erindinu ásamt yfirlitsmynd af landamerkjum hennar gagnvart aðliggjandi jörðum. Fyrir liggja jafnframt meðmæli ráðunautar hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins með að stofnun nýs lögbýlis á jörðinni verði samþykkt. Landbúnaðarnefnd sér ekkert því til fyrirstöðu að lögbýlið verði stofnað og mælir með að það hljóti staðfestingu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Vatnsleysa 2 (235731) - Beiðni um stofnun lögbýlis, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða.
-
Landbúnaðarnefnd - 14 Til ráðstöfunar af fjárhagslið landbúnaðarnefndar til fjallskilanefnda 2023 eru kr. 562 þúsund.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að veita kr. 200 þúsund af fjárhagslið landbúnaðarnefndar fyrir árið 2023 til fjallskilanefndar Hóla- og Viðvíkurhrepps, vegna viðhalds á gangnamannaskála á Fjalli í Kolbeinsdal. Bókun fundar Afgreiðsla 14. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 22. fundi sveitarstjórnar 17. janúar 2024 með níu atkvæðum.