Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 94

Málsnúmer 2404061F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 27. fundur - 15.05.2024

Fundargerð 94. fundar byggðarráðs frá 23. apríl 2024 lögð fram til afgreiðslu á 27. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 94 Málið áður tekið fyrir á 91. og 93. fundi byggðarráðs.
    Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
    Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að vinna málið áfram og taka fyrir að nýju á næsta fundi ráðsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar byggðarráðs staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með sjö atkvæðum. Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir óska bókað að þær véku af fundi undir afgreiðslu málsins.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 94 Málið áður tekið fyrir á 92. og 93. fundi byggðarráðs.
    Til fundarins komu Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Ragnar Helgason sérfræðingur á fjölskyldusviði.
    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar byggðarráðs staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 94 Lagt fram aðalfundarboð frá Landskerfi bókasafna hf., dagsett 15. apríl 2024, vegna aðalfundar félagsins þann 7. maí 2024 í Reykjavík.
    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Kristínu Einarsdóttur héraðsbókaverði að fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar byggðarráðs staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 94 Fjallað um tillögur úr skýrslu HLH ráðgjafar.
    Byggðarráð samþykkir samhljóða að vinna áfram að innleiðingu tillagna úr skýrslunni og fjalla um framgang þeirra með reglubundnum hætti. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að fá fulltrúa frá fræðslunefnd og sviðsstjóra fjölskyldusviðs inn á næsta fund ráðsins til að fjalla um tillögur sem að nefndinni snúa.
    Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar byggðarráðs staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 94 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 94/2024, "Skilvirkari leyfisveitingar á sviði umhverfis- og orkumála". Umsagnarfrestur er til og með 10.05. 2024. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar byggðarráðs staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 94 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 12. apríl 2024 frá Landssamtökum landeigenda á Íslandi þar sem vakin var athygli á aðalfundi Landssamband landeigenda sem haldinn var 18. apríl 2024 og málþingi honum tengdu. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar byggðarráðs staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.
  • .7 2401002 Ábendingar 2024
    Byggðarráð Skagafjarðar - 94 Lagt fram til kynningar yfirlit yfir ábendingar sem hafa borist í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins sl. mánuði og viðbrögð við þeim. Bókun fundar Afgreiðsla 94. fundar byggðarráðs staðfest á 27. fundi sveitarstjórnar 15. maí 2024 með níu atkvæðum.