Fara í efni

Birkimelur 24 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2407072

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 55. fundur - 15.08.2024

Fyrirliggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa Skagafjarðar dags. 05.07.2024 vegna umsóknar frá Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi, f.h. Margrétar Evu Ásgeirsdóttur og Jóhannesar Björns Þorleifssonar. Umsókn um leyfi til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni númer 24 við Birkimel í Varmahlíð, ásamt breyttri að komu að lóðinni.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á BR Teiknistofu slf. af umsækjanda. Uppdrættir númer 100, 101, 102 og 103, dagsettir 19.06.2024.
Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Birkimels 11, 20, 22, 26, 28 og 30.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 29. fundur - 21.08.2024

Vísað frá 55. fundi skipulagsnefndar frá 15. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:

"Fyrirliggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa Skagafjarðar dags. 05.07.2024 vegna umsóknar frá Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi, f.h. Margrétar Evu Ásgeirsdóttur og Jóhannesar Björns Þorleifssonar. Umsókn um leyfi til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni númer 24 við Birkimel í Varmahlíð, ásamt breyttri að komu að lóðinni.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á BR Teiknistofu slf. af umsækjanda. Uppdrættir númer 100, 101, 102 og 103, dagsettir 19.06.2024.
Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Birkimels 11, 20, 22, 26, 28 og 30."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum, að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Birkimels 11, 20, 22, 26, 28 og 30.