Skipulagsnefnd - 54
Málsnúmer 2408002F
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 108. fundur - 15.08.2024
Fundargerð 54. fundar skipulagsnefndar frá 6. ágúst lögð fram til fullnaðarafgreiðslu á 108. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
-
Skipulagsnefnd - 54 Fyrir liggur afturköllun umsóknar Vegagerðarinnar dags. 24.06.2024 um framkvæmdarleyfi vegna sjóvarnar á Hofsósi ásamt nýrri umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir verkið dags. 01.08.2024.
Skipulagsnefnd skilur framangreinda afturköllun svo að hún feli í sér ósk um að byggðarráð afturkalli ákvörðun sína dags. 03.07. 2024. um að veita umrætt framkvæmdarleyfi.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að afturkalla þá ákvörðun sína.
Skipulagsnefnd telur að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins og sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í þegar byggðu hverfi, sbr. gr. 5.9.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdarleyfisumsókn Vegagerðarinnar dags. 01.08.2024 verði grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna að skilmálum væntanlegs framkvæmdaleyfis. Nefndin leggur áherslu á að framkvæmdin og fyrirhugaðir efnisflutningar að henni verði samræmd stöðu verndarsvæðis í byggð á svæðinu. Aðkoma hafnarstjórnar að verkefninu skal einnig tryggð. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar skipulagsnefndar afgreidd undir liðnum "Sjóvörn Hofsósi - Ósk um framkvæmdaleyfi" fyrr á þessum fundi.