Fræðslunefnd - 34
Málsnúmer 2411021F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 33. fundur - 18.12.2024
Fundargerð 34. fundar fræðslunefndar frá 12. desember 2024 lögð fram til afgreiðslu á 33. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 34 Skóladagatal Tónlistarskóla Skagafjarðar skólaárið 2024-2025 lagt fram. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatalið með öllum greiddum atkvæðum. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar fræðslunefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 34 Fundargerðir skólaráðs Varmahlíðarskóla frá 16. október og 19. nóvember 2024 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar fræðslunefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 34 Breytingar á gjaldskrá leikskóla 2025 lagðar fram. Breytingin felst í því að kafli um innheimtu hefur nú verið settur inn í gjaldskrá en áður var sá kafli í innritunarreglum leikskóla. Ekki eru gerðar breytingar á upphæð í áður samþykktri gjaldskrá fyrir árið 2025. Nefndin samþykkir gjaldskrána með öllum greiddum atkvæðum. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar fræðslunefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 34 Tillaga að uppfærðum reglum um innritun barna í leikskólum Skagafjarðar lögð fram. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar fræðslunefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 34 Tillaga að uppfærðum innritunarreglum fyrir frístund í Skagafirði lögð fram í samræmi við umræður á síðasta fundi. Í uppfærðum reglum er gert ráð fyrir að frístund sé lokuð í haust- og vetrarfríum grunnskóla. Þá er einnig lagt til að heilsdagsopnun sé aðeins í boði þegar skráð börn eru átta eða fleiri þar sem að lágmarksmönnun eru alltaf tveir starfsmenn. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar fræðslunefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 34 Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir vorönn 2025, sem eru eftirfarandi: 23. janúar, 20. febrúar, 20. mars, 15. apríl og 15. maí. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar fræðslunefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkæðum.