Landbúnaðar- og innviðanefnd - 16
Málsnúmer 2411023F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 33. fundur - 18.12.2024
Fundargerð 16. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 28. nóvember 2024 lögð fram til afgreiðslu á 33. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 16 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða að gerð verði rafræn notendakönnun meðal búfjáreigenda í Skagafirði um þá möguleika í hirðingu dýrahræja sem fram komu á íbúafundi í Ljósheimum sem haldinn var af nefndinni og Búnaðarsambandi Skagafjarðar. Niðurstöður könnunarinnar verða ekki bindandi en verða hafðar til hliðsjónar við ákvarðarnatöku í málaflokknum. Sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs er falið að vinna málið áfram og gert er ráð fyrir að könnunin verði gerð í byrjun desember. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 16 Umræða um fjallskilasamþykkt Skagafjarðar. Þar sem miklar breytingar hafa orðið á búfjárhaldi í sveitum Skagafjarðar þykir ljóst að uppfæra þurfi fjallskilasamþykktir og breyta fyrirkomulagi nefndanna.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi vinni málið áfram og skili drögum að uppfærðri fjallskilasamþykkt. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 16 Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hækka eingöngu verðlaun fyrir vetrarveiði refa og stuðla þannig að aukinni vetrarveiði. Gjaldskrá fyrir unna refi og minnka veturinn 2024 - 2025 verður því eftirfarandi:
Verðlaun fyrir unna refi og minka veturinn 2024-2025,
Grendýr kvótasettir refir 21.000 kr.
Hlaupadýr kvótasettir refir 10.500 kr.
Vetrarveiddir kvótasettir refir 12.500 kr.
Fengnar ógotnar læður apríl-maí (skrokk skilað) 20.000 kr.
Refir utan kvóta (óráðnar skyttur) 1.000 kr.
Minkar kvótasettir 11.500 kr.
Minkar utan kvóta (óráðnar skyttur) 2.500 kr.
Útkall vegna tjóns af völdum refa eða minka, að beiðni Umhverfis- og Landbúnaðarfulltrúa 15.000 kr.
Kári Gunnarsson umhverfis og landbúnaðarfulltrúi vék af fundi undir þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 16 Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnir drög að uppfærðri samþykkt um hunda og kattahald. Afgreiðslu frestað.
Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkvæðum.