Byggðarráð Skagafjarðar - 126
Málsnúmer 2412008F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 33. fundur - 18.12.2024
Fundargerð 126. fundar byggðarráðs frá 11. desember 2024 lögð fram til afgreiðslu á 33. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 126 Undir þessum dagskrárlið mætti Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs til fundarins. Farið var yfir opnun tilboða í útboðsverkið "Leikskólinn í Varmahlíð - Innanhússfrágangur" en tilboð voru opnuð 29. nóvember sl. Eftir yfirferð liggur fyrir að Trésmiðjan Stígandi hf. átti lægsta tilboð sem nam 117,8% af kostnaðaráætlun.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að undirbúa gerð viðauka vegna framkvæmdarinnar og að ganga til samninga við lægstbjóðanda í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 126. fundar byggðarráðs staðfest á 33. fundi sveitarstjórnar 18. desember 2024 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 126 Lagður fram viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2024. Stærstu liðir til hækkunar rekstrar eru greiðslur til félagsmanna KÍ sem eru hluti af yfirstandandi kjaraviðræðum, lækkaðar tekjur leikskóla um vegna verkfalls, uppgjör við tónlistarkennara auk þess sem aukin útgjöld eru í viðhaldi gatna, aukin launakostnaður í dagvöl og búsetukjarna. Þessum útgjöldum er mætt með auknum framlögum en áætlanir gerðu ráð fyrir frá jöfnunarsjóði, auknum útsvarstekjum en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Einnig er fjárfestinga og efnahagsbreytingar í viðaukanum þar sem verið er að auka við fjármagni í framkvæmdir sem voru vanfjármagnaðar, lækka liði áætlunar þar sem ekki var unnt að ráðast í framkvæmdir á áætlun en einnig eru framkvæmdir við aðlögun útleigueiningar á Faxatorgi. Dregið er úr væntum tekjum af eignasölu og lægri gatnagerðargjöldum en áætlað var. Útistandandi eru 40 milljónir sem mætt er með lækkun handbærs fjár.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2024, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 126 Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. Mótun stefnunnar skal unnin samhliða fjárhagsáætlun og skal málsmeðferðin vera sú sama.
Þjónustustefna Skagafjarðar fyrir árin 2025-2028 var samþykkt í fyrri umræðu í sveitarstjórn Skagafjarðar 27. nóvember sl. og í kjölfarið auglýst eftir athugasemdum frá íbúum. Ábendingar bárust frá tveimur einstaklingum.
Byggðarráð samþykkir stefnuna samhljóða og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Þjónustustefna Skagafjarðar 2025, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 126 Byggðarráð samþykkir samhljóða að beina því til sveitarstjórnar að samþykkja að um íbúðalóðir sem úthlutað er frá og með 1. janúar 2025 gildi tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda af byggingu íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á eftir greindum lóðum við þegar tilbúnar götur á bæði Hofsósi og Steinsstöðum. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Niðurfellingin gildir um eftirtaldar lóðir á Hofsósi: Kárastígur nr. 4 og 6, Kirkjugata nr. 11, Sætún nr. 1-5 (raðhús) og Hátún nr. 1, 2, 3, 4, 5 og nr. 6-8 (parhús). Niðurfellingin gildir jafnframt um eftirtaldar lóðir á Steinsstöðum: Lækjarbakka nr 2, 4, 6 og 8. Framangreindar lóðir á Hofsósi og að Steinsstöðum bera, verði ekki annað ákveðið, full gatnagerðargjöld eftir 31. desember 2025, sé þeim úthlutað eftir það tímamark. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Niðurfelling gatnagerðargjalda, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.