Menningar- og kynningarnefnd
Dagskrá
1.Endurkoma Díónýsíu 2008 til Hofsóss
Málsnúmer 0802007Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá listamannahópnum Díónýsíu, dags. 22. jan. sl. þar sem þau þakka fyrir góðar móttökur þegar hópurinn var í Hofsósi síðastliðið sumar og óska eftir því að sveitarfélagið greiði götu þeirra varðandi komu þeirra í Hofsós 21.-30. maí n.k.
Nefndin lýsir ánægju með samstarfið við Díónýsíu og felur sviðsstjóra að ræða við hússtjórn Höfðaborgar varðandi málið og svara síðan erindinu.
2.Framlög til menningarmála 2007
Málsnúmer 0801067Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Menningarráði Norðurlands vestra þar sem óskað er eftir samantekt á framlögum til menningarmála í sveitarfélaginu árið 2007.
Sviðsstjóra falið að svara erindinu í samvinnu við fjármálastjóra.
3.Styrkbeiðni vegna ritunar sögu UMSS
Málsnúmer 0801045Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Ungmennasambandi Skagafjarðar, sem vísað var til nefndarinnar frá Byggðarráði, þar sem óskað er eftir styrk til ritunar sögu UMSS.
Nefndin vísar erindinu til afgreiðslu menningarstyrkja.
4.Styrkbeiðni vegna frumflutnings tónverka
Málsnúmer 0801011Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Skagfirsku söngsveitinni þar sem óskað er eftir styrk til tónlistarflutnings, vísað til nefndarinnar frá Byggðarráði.
Nefndin vísar erindinu til afgreiðslu menningarstyrkja.
5.Þjóðskjalasafn - Skráningarverkefni á Sauðárkróki
Málsnúmer 0801050Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að samningi milli Þjóðskjalasafns og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um skráningarverkefni á Sauðárkróki til tveggja ára. Óskað er eftir því að Héraðsskjalavörður hafi umsjón með verkefninu fyrir hönd sveitarfélagsins. Nefndin samþykkir að héraðsskjalavörður sinni verkefninu og felur sviðsstjóra að vinna að málinu með sveitarstjóra og héraðsskjalaverði.
Fundi slitið - kl. 15:30.