Fara í efni

Skipulagsnefnd

63. fundur 28. nóvember 2024 kl. 10:00 - 12:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Endurskoðun aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040

Málsnúmer 2404001Vakta málsnúmer

Íris Anna Karlsdóttir og Hlynur Torfi Torfason ráðgjafar hjá VSÓ ráðgjöf sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og kynntu vinnuvefsjá fyrir endurskoðun Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

2.Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 2404257Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við auglýsta aðalskipulagsbreytingu fyrir “Hofsós sorpmóttaka- og gámsvæði" sem var í kynningu dagana 25.09.2024- 08.11.2024 í Skipulagsgáttinni mál nr. 309/2023, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/309 . Innsendar umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða tillöguna að aðalskipulagsbreytingunni “Hofsós sorpmóttaka- og gámsvæði“ og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til yfirferðar í samræmi við 36. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Deiliskipulag.

Málsnúmer 2302209Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við auglýsta deiliskipulagstillögu fyrir "Hofsós sorpmóttaka- og gámasvæði" sem var í kynningu dagana 25.09.2024- 08.11.2024 í Skipulagsgáttinni mál nr. 206/2023, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/206 . Innsendar umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða tillöguna að deiliskipulagi, Hofsós sorpmóttaka- og gámsvæði og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.

4.Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg

Málsnúmer 2202094Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagstillögu fyrir "Skógargötureitur, Sauðárkróki, Skagafirði" sem var í kynningu dagana 25.09.2024- 08.11.2024 í Skipulagsgáttinni mál nr. 208/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/208 .

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða tillöguna að deiliskipulagi, Skógargötureitur, Sauðárkróki, Skagafirði með óverulegum breytingum og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.

Sigríður Magnúsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins og Einar E. Einarsson kom inn í hennar stað.

5.Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg

Málsnúmer 2202094Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við "Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki" sem var í kynningu dagana 25.09.2024- 08.11.2024 í Skipulagsgáttinni mál nr. 208/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1156 . Innsendar umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða Tillögu að breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Sigríður Magnúsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins og Einar E. Einarsson kom inn í hennar stað.

6.Gautastaðir L146797 í Stíflu - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum landamerkjum

Málsnúmer 2411179Vakta málsnúmer

Birgir Gunnarsson, einn þinglýstra eigendenda jarðarinnar Gautastaða, landnúmer 146797, í Stíflu, Skagafirði, óskar f.h. landeigenda Gautastaða skv. umboði dags. 08.11.2024, eftir samþykki skipulagsnefndar á hnitsettum landamerkjum jarðarinnar á móti Tungu, landnr. 146914, eins og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 784903 útg. 27. okt. 2021, breytt dags. 06. nóv. 2024, og merkjalýsingu dags. 07.11.2024. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Landamerki í hjálögðum uppdrætti sýna túlkun landeigenda á landamerkjalýsingu dags. 02. júní 1886 og örnefnaskrá Skagafjarðarsýslu, tekin saman af Páli Sigurðssyni.
Meðfylgjandi er landamerkjayfirlýsing um ágreiningslaus landamerki, árituð af landeigendum Gautastaða, L146797, og Tungu, L146914. Einnig meðfylgjandi umboð landeigenda Gautastaða, dags. 08.11.2024, þar sem Birgi Gunnarssyni er veitt umboð til þess að árita gögn sem varða uppmælingu og hnitsetningu ytri landamerkja jarðarinnar, fyrir hönd annarra landeigenda.

Mál nr. M001275 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna staðfestingu á hnitsettum landamerkjum.

7.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 52

Málsnúmer 2411020FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 52 þann 21.11.2024.

Fundi slitið - kl. 12:45.