Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Málefni Háskólans á Hólum
Málsnúmer 2405231Vakta málsnúmer
Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, mætti undir þessum dagskrárlið til að ræða málefni Háskólans á Hólum og hugsanlegrar háskólasamstæðu með Háskóla Íslands, ásamt uppbyggingu á Hólum og Sauðárkróki.
2.Útboð fyrri áfanga nýrrar byggingar leikskóla í Varmahlíð
Málsnúmer 2402245Vakta málsnúmer
Undir þessum dagskrárlið mætti Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs til fundarins.
Farið var yfir opnun tilboða í útboðsverkið "Leikskóli í Varmahlíð, uppsteypa og utanhússfrágangur" en tilboð voru opnuð 24. apríl sl. Eftir yfirferð liggur fyrir að Uppsteypa ehf. átti lægsta tilboð sem nam 122,3% af kostnaðaráætlun.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda í samræmi við umræður á fundinum.

3.Staða sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Málsnúmer 2402229Vakta málsnúmer
Staða sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Skagafjarðar var auglýst að nýju laus til umsóknar 25. mars 2024. Alls bárust 4 umsóknir um stöðuna en 2 umsækjendur drógu umsókn sína til baka eftir að viðtöl hófust. Eftir ítarlegt mat er sameiginleg niðurstaða þeirra sem komu að ráðningarferlinu að Baldur Hrafn Björnsson, aðstoðarframkvæmdastjóri á rekstrarsviði Tryggingastofnunar ríkisins, sé hæfastur til að gegna starfi sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að Baldur Hrafn Björnsson verði ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að Baldur Hrafn Björnsson verði ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Skagafjarðar.
4.Gjaldskrárbreytingar 2024
Málsnúmer 2405212Vakta málsnúmer
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða að eftirfarandi gjaldskrár verði teknar upp fyrir árið 2024 og þeir liðir er sérstaklega varða barnafjölskyldur hækki um 3,0% frá árinu 2023 í stað 4,9% og taki breytingarnar gildi þann 1. júní nk., með þeim fyrirvara að niðurstaða kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélagsins verði í takt við kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum. Þær gjaldskrár sem breytingarnar hafa áhrif á eru:
Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá grunnskóla
Gjaldskrá Tónlistarskóla Skagafjarðar
Gjaldskrá Árvistar og dvöl utan skólatíma í öðrum grunnskólum
Byggðarráð samþykkir einnig samhljóða að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að undirbúa gerð viðauka vegna gjaldskrárbreytinganna.

5.Skemmdir á gervigrasvelli apríl 2024
Málsnúmer 2404224Vakta málsnúmer
Laugardaginn 20. apríl sl. voru miklar leysingar í Skagafirði og hafði Veðurstofa Íslands m.a. gefið út gula viðvörun vegna rigninga og asahláku á Norðurlandi vestra. Í leysingunum fór gervigrasvöllurinn á Sauðárkróki undir vatn að stórum hluta þrátt fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir sem gerðar voru ofan við völlinn dagana á undan sem fólust m.a. í rásum sem útbúnar voru til að beina leysingavatni frá vellinum. Gervigrasvöllurinn, sem tekinn var í notkun fyrir sex árum, er hannaður til að drena sig sjálfur í leysingum og getur það tekið um einn til tvo sólarhringa fyrir svona mikið vatn að fara af vellinum. Við fyrrgreindar leysingar og í aðgerðum sem framkvæmdar voru til að ná vatni af vellinum er ljóst að skemmdir urðu á vellinum á um 1.500 fermetrum.
Fyrirliggjandi eru drög að tilboði frá Metatron um viðgerð á vellinum. Er áætlaður kostnaður um 11 m.kr., fyrir utan förgunarkostnað, en í kjölfarið fer fram endurnýjun á 550 fermetrum af gervigrasi á vellinum í samræmi við fjárhagsáætlun 2024.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að undirbúa gerð viðauka vegna fyrirhugaðra framkvæmda.

6.Umsókn um rekstur sundlaugarinnar á Sólgörðum
Málsnúmer 2311071Vakta málsnúmer
Að undangenginni auglýsingu og í kjölfar samþykktar á 77. fundi byggðarráðs um að ganga til viðræðna við Sótahnjúk ehf. um rekstur sundlaugarinnar á Sólgörðum til 31. desember 2026 eru lög fram drög að nýjum samningi á milli Skagafjarðar og Sótahnjúks ehf.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög samhljóða og felur sveitarstjóra að ganga frá undirritun samninga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög samhljóða og felur sveitarstjóra að ganga frá undirritun samninga.
7.Hljóðvist í skólum; Umboðsmaður barna
Málsnúmer 2403163Vakta málsnúmer
Erindinu vísað frá 27. fundi fræðslunefndar Skagafjarðar, 8. maí 2024, þannig bókað:
"Fræðslunefnd barst á síðasta fundi sínum áskorun frá Umboðsmanni barna um að huga að hljóðvist í leik- og grunnskólum. Góð hljóðvist í skólaumhverfi barna eykur gæði náms, bætir námsárangur, einbeitingu, félagslega- og andlega líðan barna og starfsfólks og hefur jákvæð áhrif á skólastarf almennt. Fræðslunefnd beinir því til byggðarráðs að á næstu misserum verði gerð úttekt á hljóðvist og lýsingu í skólum Skagafjarðar ásamt því að úttektaraðili geri tillögu að úrbótum þar sem þörf er á. Fræðslunefnd óskar eftir því að fá kynningu á úttektinni þegar henni er lokið."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að leita tilboða í úttekt á hljóðvist í leik- og grunnskólum og felur sveitarstjóra að setja málið í ferli með það að markmiði að niðurstöður liggi fyrir við gerð fjárhagsáætlunar 2025.

8.Reglur um þjónustukort í sundlaugar
Málsnúmer 2404174Vakta málsnúmer
Erindinu vísað frá 22. fundi félagsmála- og tómstundanefndar Skagafjarðar, 24. apríl 2024, þannig bókað:
"Lögð fram drög að reglum um þjónustukort í sundlaugar. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og vísar þeim til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykki drög að reglum um þjónustukort í sundlaugar og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Samráð; landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu
Málsnúmer 2405187Vakta málsnúmer
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 98/2024, "Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu". Umsagnarfrestur er til og með 20.05.2024.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að óska eftir umsögn frá Félagi sauðfjárbænda í Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að óska eftir umsögn frá Félagi sauðfjárbænda í Skagafirði.
Fundi slitið - kl. 09:22.