Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

110. fundur 28. ágúst 2024 kl. 13:30 - 16:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson fjármálastjóri
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Félagsheimili Rípurhrepps - erindi frá íbúum í Hegranesi

Málsnúmer 2407068Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 105. fundar byggðarráðs þann 8. júlí sl. og 109. fundar byggðarráðs þann 21. ágúst sl.

Undir þessum lið mættu til fundar Sigríður Ellen Arnardóttir formaður stjórnar og prókúruhafi óstofnaðs félags ásamt Ómari Kjartanssyni, Hildi Magnúsdóttur, Sigríði Ingólfsdóttur og Maríu Eymundsdóttur stjórnarmönnum félagsins.

Í júlí sl. sendi hópur íbúa, jarða- og lóðaeigenda í Hegranesi sveitarfélaginu erindi þar sem þess var farið á leit að Skagafjörður auglýsi ekki Félagsheimili Rípurhrepps til sölu heldur gangi til viðræðna við íbúa, jarða- og lóðaeigendur í Hegranesi um framtíð félagsheimilisins. Á 109. fundi byggðarráðs var það samþykkt að boða forsvarsmenn óstofnaðs félags á fund byggðarráðs.

Byggðarráð þakkar gestum fyrir komuna og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

2.Málmey - afnota og leigusamningur - nýr umsjónaraðili

Málsnúmer 2208173Vakta málsnúmer

Mál síðast tekið fyrir á 76. fundi byggðarráðs þann 13. desember 2023.

Skagafjörður auglýsti eftir umsjónarmanni með Málmey á Skagafirði í október á síðasta ári og bárust sveitarfélaginu 9 umsóknir um stöðuna. Ákveðið var að ganga til samninga við björgunarsveitina Gretti á Hofsósi. Eftir að hafa fengið álit frá Náttúrustofu Norðurlands vestra og Umhverfisstofnun þá liggja nú fyrir drög að samningi við björgunarsveitina um umsjón með Málmey. Enn er beðið endanlegrar umsagnar Vegagerðarinnar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka málið aftur á dagskrá þegar umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.

3.Breyting á hafnarreglugerð 2024

Málsnúmer 2408067Vakta málsnúmer

Máli vísað frá 9. fundi landbúnaðar- og innviðanefnd þann 22. ágúst sl., þannig bókað:
"Lögð er fram til samþykktar breytingartillaga á hafnarreglugerð nr. 1040 frá 2018 fyrir Hafnarsjóð Skagafjarðar. Breyting verður gerð á heiti nefndarinnar í hafnarreglugerðinni þar sem Umhverfis- og samgögngunefnd verði breytt í Landbúnaðar- og innviðanefnd.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða breytingartillöguna og felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ganga frá breytingunum."

Uppfærð hafnarreglugerð nr. 1040 frá 2018 fyrir Hafnarsjóð Skagafjarðar liggur nú fyrir og lögð fyrir byggðarráð.

Byggðarráð samþykkir samhljóða hafnarreglugerð fyrir Hafnarsjóð Skagafjarðar og vísar málinu til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

4.Skagafjörður, fjárhags- og rekstrarupplýsingar 2024

Málsnúmer 2404252Vakta málsnúmer

Margeir Friðriksson, fjármálastjóri lagði fram til kynningar upplýsingar um tekjur og laun Skagafjarðar janúar til júní 2024 og rekstraryfirlit fyrir sama tímabil.

5.Þjóðlendumál; eyjar og sker

Málsnúmer 2402115Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Óbyggðanefnd dagsettur 19. ágúst sl. þar sem tilkynnt er um framlengdan kröfulýsingarfrest landeigenda á svæði 12 (eyjar og sker) til 2. desember 2024.

6.Skagfirskar leiguíbúðir hses, fulltrúaráðsfundur 2024

Málsnúmer 2407097Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fulltrúaráðsfundar Skagfirskra leiguíbúða hses frá 19. ágúst 2024.

Fundi slitið - kl. 16:00.