Byggðarráð Svf. Skagafjarðar
Dagskrá
1.Málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra frá 1. janúar 2020
Málsnúmer 1906059Vakta málsnúmer
2.Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga
Málsnúmer 1908074Vakta málsnúmer
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vekur athygli á ráðuneytið hefur birt til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir ánægju með góða vinnu og undirbúning við tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga og styður framkomnar tillögur.
Byggðarráð er sammála meginmarkmiðum þingsályktunarinnar um að tryggja sjálfbærar byggðir og sveitarfélög um land allt og að þjónusta samgöngu- og fjarskiptakerfa mæti þörfum samfélagsins.
Byggðarráð tekur enn fremur undir áherslur um að sveitarfélögin verði öflug og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi, að sjálfsstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt, og að tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu. Byggðarráð telur aðgerðir þær sem boðaðar eru í þingsályktunartillögunni séu vel til þess fallnar að efla sveitarstjórnarstigið og getu sveitarfélaganna í landinu til að veita íbúum sínum sem besta þjónustu.
Byggðarráð leggur ríka áherslu á að staðið verði við fjárhagslegan stuðning við sameiningar sveitarfélaganna og að tekjustofnar þeirra verðir styrktir til að auka fjárhagslega sjálfbærni þeirra og getu til að veita öfluga þjónustu í öllum byggðum með jafnræði íbúanna að leiðarljósi.

3.Samráðsgátt; Reglur um fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóðs sv.fél. til að greiða fyrir sameiningu sv.félaga
Málsnúmer 1909045Vakta málsnúmer
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 215/2019, "Reglur um fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga". Umsagnarfrestur er til og með 07.10.2019.
Byggðarráð fagnar framkomnum tillögum og styður þær.

Fundi slitið - kl. 08:35.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar harmar að 20 ára samstarf sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í málefnum fatlaðs fólks sé á enda runnið með brotthvarfi Húnaþings vestra frá núverandi samstarfi frá og með næstu áramótum.
Í ljósi nýrrar stöðu telur byggðarráð farsælast að Sveitarfélagið Skagafjörður sinni málefnum fatlaðs fólks eingöngu innan sinna sveitarfélagamarka þegar gildandi samningur rennur út. Þó er byggðarráð reiðubúið til að gera viðauka við nýgerðan samning við Akrahrepp um að veita þjónustu í málaflokknum til íbúa hreppsins ef vilji þaðan stendur til þess.