Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar
Dagskrá
1.Sumarstörf fyrir námsmenn 2020
Málsnúmer 2004194Vakta málsnúmer
Þorvaldur fór yfir stöðuna eftir sumarið hvað varðar sumarstörf námsmanna. Sótt var um 22 störf frá VMST og fengum úthlutað 9 störfum. Um var að ræða sérstakt átaksverkefni rískisstjórnarinnar vegna Covid-19. Störfin sem ráðið var í voru ýmist í frístunda- og íþróttaþjónustu eða menningar- og kynningarmálum. Atvinnuástand í sveitarfélaginu var betra en búist var við og er ekki vitað um nein ungmenni sem voru án atvinnu í sveitarfélaginu.
2.Leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um framkvæmd frístundaþjónustu
Málsnúmer 2001067Vakta málsnúmer
Kynntar voru leiðbeiningar fyrir sveitarfélög varðandi framkvæmd frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni skv. lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarndi stuðningsþarfir. Unnið er að því að útfæra og aðlaga reglur og verklag að þjónustu sveitarfélagsins. Jafnframt þarf að meta þann kostnaðarauka sem reglur þessar hafa í för með sér. Málið verður kynnt frekar þegar vinnu við útfærslu er lokið.
3.Réttur til atvinnuleysisbóta og eða fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga
Málsnúmer 2005108Vakta málsnúmer
Kynnt var erindi Félagsmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um rétt til atvinnuleysisbóta og/eða fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga. Farið var yfir stöðuna í sveitarfélaginu með tilliti til endurmats á reglum um fjárhagsaðstoð. Ekki er talið að erindið gefi tilefni til að breyta reglum sveitarfélagsins að svo stöddu.
4.Aukið félagsstarf fullorðinna sumarið 2020 vegna COVID-19
Málsnúmer 2005187Vakta málsnúmer
Félagsmálastjóri upplýsti að sótt hefði verið um styrk vegna félagsstarfs fullorðinna 67 ára og eldri í tengslum við Covid-19. Styrkur að upphæð rúm ein milljón króna fékkst til verkefnis sem fengið hefur nafnið ,,Félagsmiðstöð á flakki". Verkefnið, sem er tímabundið, gengur út á að ná til eldri borgara í félagsstarfi af ýmsu tagi í nærumhverfi heimilis, t.d. í félagsheimilum í sveitarfélaginu. Verkefnið fer af stað nú á haustmánuðum. Starfsmenn félagsþjónustu munu fara á milli og hvetja til samveru, samtals og afþreyingar meðal eldri borgara.
5.Fundir félags- og tómstundanefndar haust 2020
Málsnúmer 2008152Vakta málsnúmer
Fundardagar félags- og tómstundanefndar voru dagsettir fram að áramótum, 24. september, 22, október, 26. nóvember og 10. desember.
Fundi slitið - kl. 16:15.