Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

27. fundur 14. október 2024 kl. 10:00 - 13:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir aðalm.
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Rakel Kemp Guðnadóttir leiðtogi farsældar, fræðslu og ráðgjafar
  • Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvats
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir því að mál nr. 2402074 Endurskðun frístunda og íþróttamála f. haust 2024 verði tekið inn með afbrigðum. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

1.Gjaldskrá Húss frítímans 2025

Málsnúmer 2409340Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga að gjaldskrá Húss frítímans 2025. Nefndin samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar til byggðarráðs.

2.Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2025

Málsnúmer 2409339Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttamannvirkja 2025. Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar til byggðarráðs.

3.Gjaldskrá Dagdvöl 2025

Málsnúmer 2410030Vakta málsnúmer

Daggjald er ákvarðað í reglugerð um dagdvöl aldraðra nr. 1245/2016 með árlegum breytingum. Nefndin samþykkir að fæðiskostnaður á dag árið 2025 verði 654 kr. Vísað til byggðarráðs.

4.Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2025

Málsnúmer 2410040Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2025 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur samkvæmt 9. gr. reglna þ.e. 80,4 % af atvinnuleysisbótum eins og þær voru í nóvember árið á undan. Vísað til byggðarráðs.

5.Niðurgreiðslur til dagforeldra og foreldragreiðslur 2025

Málsnúmer 2410042Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að upphæð niðurgreiðslna skv. 6. gr. reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og um foreldragreiðslur hækki um 3,7%. Niðurgreiðsla verður þó aldrei hærri en sem nemur mismun á heildargjaldi vistunar hjá dagforeldri og í leikskóla (gæsla, kostnaður og fæði). Vísað til byggðarráðs.

6.Fjárhagsáætlun 2025 - málaflokkur 02

Málsnúmer 2406043Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2025 í málaflokki 02 til fyrri umræðu. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun 2025 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.

7.Fjárhagsáætlun 2025 - málaflokkur 06

Málsnúmer 2406045Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2025 í málaflokki 06 til fyrri umræðu. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun 2025 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.

8.Endurskoðun frístunda- og íþróttamála f. haust 2024

Málsnúmer 2402074Vakta málsnúmer

Frístundaakstur úr dreifbýli. Nefndin samþykkir samhljóða að bæta við ferð úr Varmahlíð og Hofsósi á Sauðárkrók, aðra leiðina, á þriðjudögum til prufu fram að áramótum. Áætlað er að fyrsta ferð sé 29. október nk. Ákvörðun um framhaldið verður tekin fyrir áramót og verður nýting og reynsla af þjónustunni höfð til hliðsjónar við ákvarðanatöku. Kostnaður verður tekinn af málaflokki 06890.

9.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar 2024

Málsnúmer 2401165Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 13:00.