Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

22. fundur 04. mars 2025 kl. 15:00 - 17:40 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir ritari
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Guðný Axelsdóttir ritari
Dagskrá

1.Umsókn um leigupláss á gámasvæði

Málsnúmer 2502268Vakta málsnúmer

Farið yfir drög samningi um leigu á gámageymslusvæðum Skagafjarðar
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samning.

2.Samningur um afnot hitaorku

Málsnúmer 2502292Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að nýjum samningi við FISK um afnot hitaorku vegna fiskþurrkunarinnar að Skarðseyri 13, byggður á gjaldskrá hitaveitu sem samþykkt var af sveitarstjórn Skagafjarðar 27.11.2024.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samninginn með tveimur atkvæðum, fulltrúi VG og óháðra Hildur Magnúsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá.

3.Fyrirkomulag gjaldskráar vegna dýrahræja

Málsnúmer 2311146Vakta málsnúmer

Farið yfir verðskrá ÍGF vegna vigtunar dýrahræja og sláturúrgangs
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins og felur sviðsstjóra að afla frekari upplýsinga hjá ÍGF.

4.Fjallskilasamþykkt Skagafjarðar

Málsnúmer 2411167Vakta málsnúmer

Á fundi Landbúnaðar- og innviðanefndar með fulltrúum fjallskilanefndanna í Skagafirði þann 20. febrúar síðast liðinn var ákveðið að stofna starfshóp til að yfirfara Fjallskilasamþykkt Skagafjarðar. Í honum skyldu sitja tveir fulltrúar úr Landbúnaðar- og innviðanefnd, tveir fulltrúar fjallskilanefndanna ásamt umhverfis og landbúnaðarfulltrúa. Auglýst var eftir framboðum í hópinn og gáfu sig fimm aðilar fram til setu í hópnum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að skipa eftirtalda í starfshópinn: Einar Eðvald Einarsson og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson úr Landbúnaðar- og innviðanefnd, Einar Kári Magnússon og Atli Már Traustason frá fjallskilanefndunum og Kári Gunnarsson umhverfis og landbúnaðarfulltrúi. Með hópnum starfa sviðsstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs og lögfræðingur sveitarfélagsins ásamt öðrum sem kallaðir verða til eftir þörfum.
Hildur Magnúsdóttir fulltrúi VG og óháðra óskar bókað að hún tekur ekki þátt í vali á milli aðila í vinnuhóp vegna nýrrar fjallskilasmþykktar enda ekki góð stjórnsýsla að handvelja aðila umfram aðra af þeim sem buðu sig fram.

5.Ágangur búfjár og girðingar

Málsnúmer 2502239Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Pétri Kristinssyni lögmanni fyrir hönd Margrétar Hjaltadóttur og Jóns Þóris Ásmundssonar eigenda jarðarinnar Austara Hóls í Flókadal þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða girðingu á merkjum jarðanna Austara Hóls og Teiga í Flókadal.

6.Háeyri 8 L197574 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2501300Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn FISK-Seafood ehf. um Háeyri 8 við Sauðárkrókshöfn.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við skipulagsnefnd að Fisk Seafood ehf. verði úthlutað lóðinni að Háeyri 8 þar sem að um hafsækna starfsemi sé að ræða.

7.Háeyri 8 L197574 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2501409Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn Norðar ehf. um Háeyri 8 við Sauðárkrókshöfn fyrir aðstöðu fyrir inn- og útflutning sem hagkvæmt er að hafa nálægt höfninni.
Landbúnaðar- og innviðanefnd er sammála um að Norðar ehf. sé ekki með starfsemi sem krefjist aðstöðu á höfninni þar sem landrými er takmörkuð gæði. Því er lagt til við skipulagsnefnd að hafna umsókninni.

8.HR-Monitoring á Veitu- og framkvæmdasviði

Málsnúmer 2502309Vakta málsnúmer

Mannauðsmælingar HR-Monitor hafa nú verið framkvæmdar þrisvar sinnum, þ.e. í nóvember og desember 2024 og í febrúar 2025. Útkoma á Veitu- og framkvæmdasviði hefur verið góð og mjög góð í flestum tilfellum. Sá hluti mælinga sem komið hefur verst út er þjálfun og starfsþróun, annars vegar og hins vegar mæling á áhuga, skuldbindingu og virðinu gagnvart starfsfólki. Sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs hefur nýtt sviðsfundi veitu- og framkvæmdasviðs til að fara yfir og skerpa á þeim þáttum sem betur mega fara. Jafnframt má geta að allir stjórnendur sviðsins sitja stjórnendanámskeið þessa dagana og nýtist sú þjálfun stjórnendum vel til að takast á við jafnt, jákvæða og neikvæða þætti fyrrnefndra mannauðsmælinga.

9.Líkanatilraunir fyrir nýja ytri höfn á Sauðárkróki

Málsnúmer 2405554Vakta málsnúmer

Sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs kynnti nýjustu útfærslu Vegagerðarinnar vegna hönnunar á nýjum hafnargarði Sauðárkrókshafnar.

Fundi slitið - kl. 17:40.