Samþykktir - nýjar
Málsnúmer 1303082
Vakta málsnúmerFramkvæmdaráð Skagafjarðar - 119. fundur - 05.03.2013
Samþykkt að hafa vinnufund n.k. þriðjudag kl 8:15.
Framkvæmdaráð Skagafjarðar - 120. fundur - 02.04.2013
Ákveðið að hittast fimmtudaginn 4.apríl kl. 13.
Framkvæmdaráð Skagafjarðar - 124. fundur - 21.05.2013
Farið var yfir ný drög að samþykktum og sérstaklega farið yfir 47.grein samkvæmt beiðni nefndar um endurskoðun samþykkta.
Framkvæmdaráð Skagafjarðar - 125. fundur - 03.06.2013
Ákveðið að hittast þann 11.júní n.k. kl 8:30 og fara yfir samþykktir.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 302. fundur - 06.06.2013
Nýjar samþykktir um stjórn og fundarsköp fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð lagðar fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt að vísa málinu til seinni umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt að vísa málinu til seinni umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 303. fundur - 20.06.2013
Lagðar fram nýjar samþykktir um stjórn og fundarsköp fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð, til seinni umræðu í sveitarstjórn.
Framlagðar samþykktir bornar upp til samþykktar. Samþykkt með níu atkvæðum.
Framlagðar samþykktir bornar upp til samþykktar. Samþykkt með níu atkvæðum.
Framkvæmdaráð Skagafjarðar - 126. fundur - 25.06.2013
Kynntar nýjar samþykktir sem búnar eru að fara í tvær umræður í sveitarstjórn, búið er að senda þær til staðfestingar í innanríkisráðuneyti.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 631. fundur - 18.07.2013
Lagðar fram athugasemdir innanríkisráðuneytisins við nýjar samþykktir Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til nefndar um endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til nefndar um endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins.
Framkvæmdaráð Skagafjarðar - 127. fundur - 13.08.2013
Kynntar athugasemdir frá innanríkisráðuneyti vegna nýrra samþykkta.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 634. fundur - 29.08.2013
Samþykktir Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem samþykktar voru á 303. fundi sveitarstjórnar voru sendar til staðfestingar ráðherra. Gerðar voru athugasemdir við þær af hálfu innanríkisráðuneytisins. Á þessum fundi eru lagðar fram endurbættar samþykktir fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð þar sem tillit hefur verið tekið til athugasemdanna.
Byggðarráð samþykkir áorðnar breytingar og samþykktirnar í heild.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda samþykktirnar til innanríkisráðuneytis til staðfestingar. Einnig vill byggðarráð þakka nefnd um endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins fyrir vel unnin störf.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 305. fundur - 18.09.2013
Afgreiðsla 634. fundar byggðaráðs staðfest á 305. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 637. fundur - 26.09.2013
Samþykktir Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem samþykktar voru á 303. fundi sveitarstjórnar með breytingum sem voru staðfestar á 305. fundi sveitarstjórnar voru sendar til staðfestingar ráðherra. Gerðar voru athugasemdir við þær af hálfu innanríkisráðuneytisins. Á þessum fundi eru lagðar fram endurbættar samþykktir fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð þar sem tillit hefur verið tekið til athugasemda varðandi 8.gr.
Byggðarráð samþykkir áorðnar breytingar og samþykktirnar í heild.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda samþykktirnar til innanríkisráðuneytis til staðfestingar.
Byggðarráð samþykkir áorðnar breytingar og samþykktirnar í heild.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda samþykktirnar til innanríkisráðuneytis til staðfestingar.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 640. fundur - 24.10.2013
Lagt fram til kynningar bréf frá innanríkisráðuneytinu, þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur staðfest þann 15. október 2013, samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar og sent hana til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 307. fundur - 30.10.2013
Afgreiðsla 637. fundar byggðaráðs staðfest á 307. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 307. fundur - 30.10.2013
Afgreiðsla 640. fundar byggðaráðs staðfest á 307. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 308. fundur - 20.11.2013
Ný samþykkt Sveitarfélagins Skagafjarðar var birt í B deild stjórnartíðinda þann 30. október 2013. Til kynningar.