Fara í efni

Norðurstrandarleið Arctic Coast Way

Málsnúmer 1711018

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 799. fundur - 09.11.2017

Lagt fram til kynningar stöðuskýrsla verkefnisstjóra Arctic Coast Way eða Norðurstrandarleið, Christiane Stadler. Í skýrslunni kemur fram að verkefnið fer sístækkandi og eru nú alls 17 sveitarfélög tengd verkefninu.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 51. fundur - 24.11.2017

Bryndís Lilja Hallsdóttir verkefnastjóri kynnti 2. áfangaskýrslu Norðurstrandarleiðar (Arctic Coast Way) og það sem fram hefur farið á vegum verkefnisins á undanförnum vikum.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þá vinnu sem fram hefur farið og bindur miklar vonir við verkefnið.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 817. fundur - 01.03.2018

Lögð fram til kynningar þriðja áfangaskýrslan um Arctic Coast Way - Norðurstrandaleið.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 868. fundur - 29.05.2019

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla nr. 4, maí 2019, um verkefnið Arctic Coast Way - Norðurstrandaleið.