Skipulagsnefnd
Dagskrá
Anna Kristín Guðmundsdóttir ráðgjafi í skipulagsmálum sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
1.Hesteyri 2 - Beiðni um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 2301018Vakta málsnúmer
Kynning frá Reimari Marteinssyni fulltrúa Kaupfélags Skagfirðinga á fyrirhugaðri breytingu á deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar við Hesteyri 2.
2.Vinagerði (Sölvanes) - Umsókn um stofnun byggingarreits
Málsnúmer 2303076Vakta málsnúmer
Eydís Magnúsdóttir og Rúnar Máni Gunnarsson sækja fyrir hönd Smiðjugrundar ehf. um stofnun 2.306 m2 byggingarreits innan Vinagerðis útskiptrar spildu úr landi Sölvanes L146238 sem staðfest var fundi sveitarstjórnar 18.01.2023.
Einnig er þess óskað að breyta skráningu landsins úr sumarhúsalóð yfir í íbúðarhúsalóð.
Fyrirhugað er að byggja 100-150 m2 íbúðarhús.
Framlagður afstöðuuppdráttur er í mælikvarðanum 1:1500, unninn af David Bothe.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fenginni umsögn minjavarðar.

3.Nestún 1 - Lóðarmál, Umsókn um breikkun á innkeyrslu
Málsnúmer 2302227Vakta málsnúmer
Magnús E. Svavarsson lóðarhafi Nestúns 1, sækir um endurskoðun á höfnun erindis hans um breikkun á innkeyrslu til norðurs að lóðamörkum Nestúns 3. Frekari rökstuðingur fylgir með erindinu. Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu erindisins á síðasta fundi nefndarinnar þann 23.03.2023.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar í fyrri bókun nefndarinnar frá 20. fundi þann 9.03.2023:
"Magnús E. Svavarsson lóðarhafi Nestúns 1, sækir um breikkun á innkeyrslu til norðurs að lóðamörkum Nestúns 3. Nestún 1 stendur við horn á gatnarmótum og er ekki gert ráð fyrir bílastæðum framan við húsið. Beiðnin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi og hafnar því skipulagsnefnd erindinu."

4.Skipulagsgátt - opnun, skráning notenda og kynning
Málsnúmer 2303277Vakta málsnúmer
Í samræmi við ákvæði skipulagslaga og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana hefur Skipulagsstofnun unnið að undirbúningi Skipulagsgáttar - samráðsgáttar (landfræðilegrar gagna- og samráðsgáttar) um skipulag, umhverfismat og útgáfu framkvæmdaleyfa.
Skipulagsgátt mun hafa í för með sér miklar breytingar í samráðsferli ofangreindra mála. Samkvæmt lögunum skulu öll mál kynnt í gáttinni, þangað berast umsagnir og athugasemdir, afgreiðslur og endanleg gögn. Við hönnun og uppsetningu hefur verið lögð áhersla á að gáttin sé aðgengileg, auðlesanleg og einföld í notkun.

Fundi slitið - kl. 12:00.