Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

32. fundur 20. mars 2025 kl. 14:00 - 16:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Hauksson formaður
  • Hrefna Jóhannesdóttir varaform.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir aðalm.
  • Hrólfur Þeyr Hlínarson varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Tinna Kristín Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Ársskýrsla Héraðsbókasafns Skagfirðinga

Málsnúmer 2503188Vakta málsnúmer

Kristín Sigurrós Einarsdóttir, héraðsbókavörður kom inn á fundinn og kynnti ársskýrslu Héraðsbókasafns Skagfirðinga.

2.Þjónustukönnun Héraðsbókasafns Skagfirðinga

Málsnúmer 2502115Vakta málsnúmer

Teknar fyrir niðurstöður þjónustukönnunar fyrir Héraðsbókasafn Skagfirðinga sem framkvæmd var í nóvember og desember 2024. Alls bárust 202 svör og munu niðurstöðurnar nýtast í áframhaldandi þróun á þjónustu Héraðsbókasafnsins.
Helstu niðurstöður voru á þá leið að mikill áhugi er fyrir laugardagsopnun, fjölbreyttari viðburðum fyrir yngrafólk og betri aðstöðu fyrir námsmenn.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir, héraðsbókavörður sat fundinn undir þessum dagskrálið.

3.Víkingurinn 2025

Málsnúmer 2503145Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi vegna Víkingsins 2025 sem fer fram 11. - 13. júní 2025. Leitað er að fjórum sveitarfélögum þar sem keppt yrði í 2 keppnisgreinum á hverjum stað. Með Víkingnum 2025 er verið að sameina Vestfjarðavíkinginn, Austfjarðatröllið og Norðurlands Jakann í eitt mót.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið ef keppnin verður haldin í Skagafirði um gistingu fyrir þátttakendur og starfsfólk Víkingsins ásamt einni máltíð.

4.Styrkbeiðni Söguseturs Íslenska hestsins fyrir árið 2025

Málsnúmer 2503216Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkbeiðni frá Sögusetri íslenska hestsins dagsett 18.03.2025.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að styrkja Sögusetrið um 1.500.000 kr til starfseminnar á árinu 2025. Fjármunir teknir af málaflokki 05890.
Sigurður Hauksson vék af fundi undir þessum lið.

5.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir árið 2026

Málsnúmer 2503217Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 18.03.2025 um gjaldskrá byggðasafnsins fyrir árið 2026.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirlagða gjaldskrá fyrir árið 2026. Erindinu vísað til byggðarráðs.

6.Aðsóknartölur tjaldsvæða 2024

Málsnúmer 2501101Vakta málsnúmer

Lagðar fram aðsóknartölur fyrir tjaldsvæðin í Skagafirði árið 2024.
Heildar aðsókn allra tjaldsvæða í Skagafirði var 9.650 fyrir árið 2024 en var 11.129 fyrir árið 2023 en það ár var mikil aukning í gestafjölda.
Heildar aðsóknartölur eftir árum fyrir öll tjaldsvæði er eins og hér segir:
2024 - 9.650
2023 - 11.129
2022 - 7.168
2021 - 5.723
2020 - 4.246
2019 - 7.677

7.Rekstur félagsheimila í Skagafirði

Málsnúmer 2503129Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar rekstrartölur fyrir félagsheimili í Skagafirði.

8.Sæluvika Skagfirðinga 2025

Málsnúmer 2502075Vakta málsnúmer

Sæluvika Skagfirðinga verður haldin dagana 27. apríl til 2. maí nk.
Starfsmenn nefndarinnar fóru yfir fyrirkomulag hátíðarinnar og dagskrá.
Verið er að auglýsa eftir viðburðum á hátíðina og hvetur nefndin áhugasama að standa fyrir viðburðum á Sæluviku.

9.Styrkbeiðni vegna tónleika á Sæluviku

Málsnúmer 2503065Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkbeiðni frá skagfirska tónlistarmanninum Atla Degi Stefánssyni, dagsett 5. mars 2025, vegna útgáfutónleika í Sæluviku.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd óskar Atla Degi til hamingju með útgáfuna og samþykkir samhljóða að styrkja útgáfutónleikana um 94 þúsund krónur til leigu á hljóðkerfi og hljóðmanni. Fjármagn tekið af styrktarlið Sæluviku, lið 0511.

Fundi slitið - kl. 16:00.