Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

114. fundur 24. september 2024 kl. 08:00 - 08:58 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Dagskrá

1.Steinsstaðir lóð nr. 1 og lóð nr. 2 - Útrunnir lóðarleigusamningar

Málsnúmer 2401329Vakta málsnúmer

Lóðarleigusamningar fyrir Steinsstaði lóð 1 og lóð 2 eru útrunnir og eru því lagðir fyrir fund byggðarráðs til afgreiðslu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga til viðræðna við leigutaka Steinsstaða, lóðar 1 og lóðar 2, samkvæmt gildandi gjaldskrá og reglum sveitarfélagsins um lóðarleigu og lóðaúthlutun.

2.Málmey - afnota og leigusamningur - nýr umsjónaraðili

Málsnúmer 2208173Vakta málsnúmer

Mál síðast tekið fyrir á 110. fundi byggðarráðs þann 28. ágúst 2024.

Skagafjörður auglýsti eftir umsjónarmanni með Málmey á Skagafirði í október á síðasta ári og var ákveðið að ganga til samninga við björgunarsveitina Gretti á Hofsósi. Á fundinum voru lögð fyrir byggðarráð drög að samningi fyrir umsjónarmann með Málmey. Búið er að uppfæra samningsdrögin með innkomnum athugasemdum frá Náttúrustofu Norðurlands vestra, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni.

Byggðarráð samþykkir samhljóða samningsdrögin með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við Björgunarsveitina Gretti á Hofsósi.

3.Kvöldopnun í Aðalgötunni

Málsnúmer 2409199Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. september 2024 frá Ólínu Björk Hjartardóttur fyrir hönd rekstraraðila við Aðalgötu á Sauðárkróki. Óskar hún eftir því að fá leyfi sveitarfélagsins til þess að loka Aðalgötunni þann 10. október 2024, milli kl. 20:00 og 22:00 vegna kvöldopnunar verslunar-, veitinga- og þjónustuaðila.

Byggðarráð samþykkir að veita leyfi fyrir því að Aðalgatan verði lokuð frá horni Skólastígs og Skagfirðingabrautar að Villa Nova fimmtudaginn 10. október 2024 á milli kl. 20:00 og 22:00.

4.Styrkbeiðni vegna fasteignaskatts

Málsnúmer 2409218Vakta málsnúmer

Ritað í trúnaðarbók.

5.Samráð; Drög að Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029

Málsnúmer 2409247Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. september 2024 þar sem Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 185/2024, "Drög að Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029". Umsagnarfrestur er til og með 4.10.2024.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að setja saman drög að umsögn og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.

6.Samráð; Drög að reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk

Málsnúmer 2409216Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 181/2024, "Drög að reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk". Umsagnarfrestur er til og með 01.10.2024.

Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða eftirfarandi umsögn:

Almennt

Fjármögnun og fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks hafa verið í umræðunni í langan tíma. Ýmsir starfshópar hafa verið að störfum sem hafa skilað skýrslum. Nú síðast í febrúar 2024 kom fram skýrsla um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk. Ljóst er að síðasta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um aðgerðir til að ná betur utan um kostnaðarauka í málaflokknum dugar ekki til. Skagafjörður leggur áherslu á að leggja þarf til aukna fjármuni til málaflokksins umfram þá sem myndast við árlegan tekjuvöxt sveitarfélaga.

Hætta úthlutun á grundvelli raunkostnaðar til hliðar við almenna úthlutun á grundvelli stuðingsþarfa

Eins og fram kemur í drögum er lagt til að gerð verði breyting á núgildandi framkvæmd og nefndar tvær leiðir til að afnema undanþágu vegna veitingu framlaga á grunni raunkostnaðar þ.e. leið A og leið B.
Tillaga A: gert er ráð fyrir því að ekki verði heimilt að greiða framlög vegna notenda, eldri en sjö ára, sem ekki hafa fengið samræmt mat stuðningsþarfa (SIS mat). Ef ekki liggur fyrir mat á stuðningsþörf notenda sem aldurs síns vegna hefur ekki getað fengið slíkt mat er heimilt að ákvarða útgjaldaþörf hans út frá raunkostnaði.
Tillaga B: gert er ráð fyrir því að heimilt verði að greiða framlög vegna notenda eldri en sjö ára sem ekki hafa fengið samræmt mat stuðningsþarfa (SIS mat) en ber þá að miða stuðningsflokk þeirra við flokk 5.
Skagafjörður tekur undir mikilvægi þess að afnema undanþágu vegna veitingu framlaga á grunni raunkosnaðar og mælir með tillögu A.
Markmið laga nr. 38/2018 er að fatlað fólk skuli eiga rétt á allri almennri þjónustu ríkis og sveitarfélaga, reynist þörf fatlaðs einstaklings fyrir þjónustu eða þörf fyrir stuðningi meiri eða sérhæfðari en svo að henni sé fullnægt innan almennrar þjónustu, skal veita viðbótarþjónustu samkvæmt fyrrgreindum lögum. Lögin gera einnig ráð fyrir að við mat á stuðningsþörfum skuli stuðst við samræmdar aðferðir. Samræmt mat á stuðningsþörf er því mikilvægt til að gæta að jafnræði einstaklinga til þjónustu sem og til að gæta að jafnræði sveitarfélaga/þjónusvæða til fjármögnunar þjónustu. Mikilvægt er að Jöfnunarsjóður hafi haft forgöngu um samræmt mat á stuðningsþörf á landsvísu (SIS mat) Fram kemur í skýringum Ráðgjafar: greingarstöðvar sem annast framkvæmd matsins að markmið með matinu sé að nýta niðurstöður til úthlutunar fjármagns og er mikilvægur liður í gerð einstaklingsbundinna þjónustuáætlana sbr. lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Samræmt mat stuðlar að því að auka lífsgæði og stuðlar að auknum mannréttindum.

Viðmiðmiðunardagsetning fyrir samræmt mat á stuðningsþörfum verði 1. október ár hvert.

Þegar viðmiðunardagsetning fyrir endanlegan útreikning framlaga er sett er mikilvægt að hafa í huga hvernig skipulag framkvæmdar matsins er í heimabyggð eftir að umsókn er samþykkt. Tilhögun í dag er sú að hvert landsvæði fær úthlutað tíma á ákveðnum tímabilum. Á þjónustusvæði Skagafjarðar nær það fram í september/október ár hvert, viðmiðunardagsetning í reglugerð kemur sér því illa í því samhengi.

Viðbótarframlög felld út

Ljóst er að framlögin voru tilkomin vegna verulegs íþyngjandi kostaðar umfram tekjur við yfirfærslu málaflokksins til sveitarfélaga. Íþyngjandi kostnaður er m.a. tilkominn vegna leiguskuldbindinga. Með því að fella framlögin út munu sveitarfélög ekki standa jafnfætis varðandi húsnæðiskostnað.

Innviðaframlag skýrt nánar með verklagsreglum

Jákvætt er að settar verði verklagsreglur um framkvæmdina. Mikilvægt er að geta brugðist við breytingum á skipan þjónustusvæða en gæta þarf einnig að uppbyggingu þjónustu í nærumhverfi innan þjónustusvæða þ.e. meta þjónustuuppbyggingu jafnhliða stærð svæða.

Samandregið

Skagafjörður leggur áherslu á framangreinda liði, ekki eru gerðar athugasemdir við aðrar breytingar í reglugerðardrögunum. Mikilvægt er að ný reglugerð komi í veg fyrir að það sé tvöfalt kerfi í gangi við mat á úthlutun. Með því að leggja aukna áherslu á samræmt mat á stuðningsþörf á landsvísu og telja matið til útgjaldaþarfar þjónustusvæða er meira gagnsæi í fjármögnun á milli þjónustusvæða, að því gefnu að innviðaframlag sé vel skilgreint með verklagsreglum sem taka mið af uppbyggingu þjónustu innan þjónustusvæða. Rétt er að geta þess að verulega íþyngjandi er fyrir fjármögnun NPA samninga að búið sé að fella ákvæði um 25% framlag ríkisins til gerðra samninga.

7.Tilboð til sveitarfélaga um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli

Málsnúmer 2407019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur um styrkta ljósleiðaravæðingu í þéttbýli utan markaðssvæða. Sveitarstjóri undirritaði samninginn fyrir hönd Skagafjarðar þann 19. september 2024.

8.Fjárhagsáætlun 2025-2028

Málsnúmer 2407014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað frá greiningarteymi þróunarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 18. september 2024 um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2025 og 2026-2028.

Fundi slitið - kl. 08:58.