Styrktarsjóður EBÍ 2014
Málsnúmer 1402113
Vakta málsnúmerUmhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 95. fundur - 26.02.2014
Lagt var fyrir fundinn erindi frá EBÍ (Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands) þar sem sveitarfélaginu er boðið að sækja um styrk úr styrktarsjóði EBÍ árið 2014. Sjóðurinn styrkir sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu- og menningarmálum í aðildarsveitarfélögum. Nefndin leggur til að sótt verði um styrk til merkinga á útivistarsvæðum í sveitarfélaginu.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 5. fundur - 27.02.2014
Lagt fram til kynningar erindi frá styrktarsjóði EBÍ þar sem vakin er athygli á umsóknarfresti í sjóðinn. Nefndin leggur til að sótt verði um styrk til merkinga á útivistarsvæðum í sveitarfélaginu, líkt og umhverfis- og samgöngunefnd hefur lagt til.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 312. fundur - 20.03.2014
Afgreiðsla 651. fundar byggðaráðs staðfest á 312. fundi sveitarstjórnar 20. mars 2014 með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 312. fundur - 20.03.2014
Afgreiðsla 5. fundar atvinnu- menningar og kynningarnefndar staðfest á 312. fundi sveitarstjórnar 20. mars 2014 með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 312. fundur - 20.03.2014
Afgreiðsla 95. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 312. fundi sveitarstjórnar 20. mars 2014 með níu atkvæðum.
Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 94. fundur - 02.04.2014
Sviðsstjóra falið að gera tillögur að verkefnum sem fallið gætu undir forsendur styrks.
Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 172. fundur - 09.04.2014
Lagt fram til kynningar erindi frá Styrktarsjóði EBÍ.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 313. fundur - 09.04.2014
Afgreiðsla 95. fundar fræðslunefndar staðfest á 313. fundi sveitarstjórnar 9. apríl 2014 með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 315. fundur - 07.05.2014
Afgreiðsla 172. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 315. fundi sveitarstjórnar 7. maí 2014 með níu atkvæðum.
Byggðarráð samþykkir að erindið verði rætt í fastanefndum og tillögum skilað til sveitarstjóra í góðum tíma fyrir lokafrest.