Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar
Dagskrá
Í upphafi fundar var samningur við Félag eldri borgara í Skagafirði undirritaður og nefndin fundaði í kjölfarið með stjórn félagsins.
1.Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Skagafirði 2021-2023
Málsnúmer 2109274Vakta málsnúmer
Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Skagfirði sem undirritaður var í upphafi fundarins lagður fram. Samningurinn hefur verið uppfærður og gildir til loka september 2023. Í kjölfar undirritunar fundaði nefndin með stjórn FEBS. Nefndin þakkar FEBS fyrir gott samstarf og óskar þeim alls hins besta.
2.Landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar
Málsnúmer 2003223Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Æskulýðssambandi Þjóðkirkjunnar þar sem þeir tilkynna að landsmótinu sem átti að halda á Sauðárkróki í lok október sé frestað. Ástæðan er óvissa um reglur sem í gildi verða varðandi Covid 19. Félags- og tómstundanefnd býður þau velkomin að halda mótið á Sauðárkróki síðar.
3.Aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni
Málsnúmer 2106059Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Forsætisráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem ítrekað er fyrra erindi um skyldu sveitarfélaga til að formgera forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni með sérstöku forvarnarteymi sem starfa skal í skólum á öllum skólastigum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum, í íþrótta- og æskulýðsstarfi og öllu tómstundastarfi. Forvarnaráætluninni fylgja 26 aðgerðir sem eru brotnar niður í sex meginþætti og eru ábyrgðaraðilar 18 talsins, þar á meðal skólaskrifstofur sveitarfélaga og skólastjórar grunn- og leikskóla. Gert er ráð fyrir þverfaglegu samstarfi um aðgerðir. Stýrihópur á vegum forsætisráðuneytisins fylgir áætluninni eftir og sett verður upp mælaborð sem uppfært er tvisvar á ári. Félags- og tómstundanefnd leggur mikla áherslu á að þessari áætlun verði hrint í framkvæmd með markvissum hætti og að hún nái til alls starfs þar sem unnið er með börn. Nefndin beinir því til sviðsstjóra fjölskyldusviðs að koma á fót teymi sem fylgir málinu eftir.
4.Umf. Smári beiðni um byggingu aðstöðuhúss
Málsnúmer 2109089Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Ungmennafélaginu Smára, þar sem óskað er eftir að ráðist verði í byggingu aðstöðuhúss við íþróttavöllinn í Varmahlíð. Upplýst var að undirbúningur fyrir verkefni þetta er þegar hafinn, það hefur m.a. verið rætt í eignasjóði sveitarfélagsins og teikningar eru í vinnslu í samráði við Umf. Smára. Nefndin fagnar því að þetta mál skuli vera á veg komið og vísar erindinu til eignasjóðs/byggðarráðs.
5.Breyting á vetraropnunartíma sundlaugarinnar á Sólgörðum
Málsnúmer 2109093Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá rekstraraðila sundlaugarinnar á Sólgörðum um vetraropnunartíma. Óskað er eftir að opið verði sem hér segir:
Sunnudagur: lokað
Mánudagur: lokað
Þriðjudagur: 17-19
Miðvikudagur: lokað
Fimmtudagur: lokað
Föstudagur: 19:30-22:00
Laugardagur: 15-19
Breytingin tekur mið af fenginni reynslu. Félags- og tómstundanefnd samþykkir erindið.
Sunnudagur: lokað
Mánudagur: lokað
Þriðjudagur: 17-19
Miðvikudagur: lokað
Fimmtudagur: lokað
Föstudagur: 19:30-22:00
Laugardagur: 15-19
Breytingin tekur mið af fenginni reynslu. Félags- og tómstundanefnd samþykkir erindið.
6.Aðsóknartölur sundlauganna 2021
Málsnúmer 2109269Vakta málsnúmer
Frístundastjóri fór yfir aðsókn að sundlaugum í Skagafirði á 10 ára tímabili frá 2011. Áhugavert er að sjá þá miklu aukningu sem orðið hefur á gestafjölda í laugar sem hvoru tveggja skýrist af auknum ferðamannafjölda en einnig af auknum áhuga heimamanna á að nýta sundlaugar í Skagafirði.
7.Hús frítímans 2021-2022
Málsnúmer 2109270Vakta málsnúmer
Frístundastjóri kynnti tímatöflu Húss frítímans. Nefndin lýsir ánægju sinni með þá miklu og fjölbreyttu dagskrá sem er í húsinu. Fjölgað hefur í öllum aldurshópum sem nýta húsið.
8.Innleiðing laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
Málsnúmer 2109010Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri upplýsti að mikil áhersla væri lögð á farsæla innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og hefur félagsmálaráðuneytið yfirumsjón með henni. Fjölskyldusvið er þegar komið vel áleiðis með innleiðingu í gegnum samþættingu þeirra þriggja stoða sem mynda fjölskyldusvið, félagsþjónustu, frístundaþjónustu og fræðsluþjónustu. Ljóst er þó að talsverð vinna er framundan við að máta þjónustu fjölskyldusviðs inn í lögin og lagfæra það sem kann að standa eftir. Nefndin leggur áherslu á öflugt samráð og samstarf við Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
9.Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir haustönn 2021
Málsnúmer 2109094Vakta málsnúmer
Frístundastjóri kynnti að frístundastyrkir fyrir börn á tekjulágum heimilum, sem veittir eru af hálfu félagsmálaráðuneytisins, verða 25.000 krónur fyrir hvert barn til áramóta. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um framhald styrkjanna. Reglur sveitarfélagsins verða uppfærðar í samræmi við nýjar leiðbeiningar ráðuneytisins. Styrkir þessir koma til viðbótar við Hvatapeninga sveitarfélagsins.
10.Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 14.10.2021
Málsnúmer 2109216Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Jafnréttisstofu með boðun á landsþing jafnréttisnefnda sveitarfélaga. Þingið verður haldið með rafrænum hætti þann 14. október n.k. kl. 9:00-11:00. Áherslur þingsins að þessu sinni er ný jafnréttislöggjöf og jafnlaunastefna sveitarfélaga. Nefndarmenn eru hvattir til að skrá sig á þingið.
11.Framkvæmdaráð - málefni fatlaðs fólks
Málsnúmer 2109245Vakta málsnúmer
Framkvæmdaráð er ráð sem starfar í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks og samstarfssamning sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra. Í ráðinu sitja oddvitar eða framkvæmdastjórar sveitarfélaganna. Búið er að halda einn fund í ráðinu. Ráðið hefur fyrst og fremst stefnumótandi hlutverk, m.a. í húsnæðismálum sem og yfirstjórn reksturs í þjónustu við fatlað fólk. Meðfylgjandi er fundargerð fyrsta fundar ráðsins. Nefndin ítrekar mikilvægi 3. liðar fundargerðarinnar þar sem fjallað er um húsnæðismál fatlaðs fólks á Blönduósi og Sauðárkróki og beinir því til byggðarráðs að taka þessi mál til umræðu og hefja jafnframt viðræður við sveitarstjórnir í Austur-Húnavatnssýslu um uppbyggingu búsetukjarna á Blönduósi og á Sauðárkróki.
Þorvaldur Gröndal, Erla Hrund Þórarinsdóttir og Guðrún Jónsdóttir véku af fundi eftir þennan lið.
12.Trúnaðarbók félags- og tómstundanefndar 2021
Málsnúmer 2102131Vakta málsnúmer
Tvö mál tekin fyrir. Samþykkt og fært í trúnaðarbók.
Fundi slitið - kl. 16:45.