Fara í efni

Vegamál

Málsnúmer 1401233

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 94. fundur - 21.01.2014

Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir fundi við Vegagerðina um ástand safn- og tengivega í Skagafirði.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 311. fundur - 12.02.2014

Afgreiðsla 94. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 311. fundi sveitarstjórnar þann 12. febrúar 2014 með níu atkvæðum.

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 95. fundur - 26.02.2014

Farið var yfir ástand héraðs- og tengivega í Skagafirði með fulltrúum Vegagerðarinnar. Ákveðið var að nefndin geri tillögu að forgangsröðun á uppbyggingu og viðhaldi vega í sveitarfélaginu á næstu árum.
Fulltrúar Vegagerðarinnar koma á fund nefndarinnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 312. fundur - 20.03.2014

Afgreiðsla 95. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 312. fundi sveitarstjórnar 20. mars 2014 með níu atkvæðum.

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 97. fundur - 03.04.2014

Nefndin leggur til eftirfarandi forgangsröðun varðandi bundið slitlag á tengivegi;
1 Skagafjarðarvegur nr. 752 frá Stekkjarholti að Jökulsá.
2 Hegranesvegur nr. 764.
3 Ólafsfjarðarvegur nr. 82 frá Ketilási að Molastöðum.

Jafnframt leggur nefndin áherslu á:
1 Reykjastrandarvegur nr. 748 verði skilgreindur sem tengivegur að Reykjum sem fyrst í ljósi þeirrar miklu umferðar vegna atvinnusóknar og ferðamannastraums. Í kjölfarið verði hafinn undirbúningur að lagningu bundins slitlags á veginn.
2 Að ný talning á umferð verði gerð á Ásavegi nr. 769 og Sæmundarhlíðarvegi nr. 762.
3 Að Tindastólsvegur nr. 746 verði settur á fjárlög á ný en uppbygging vegarins var á samgönguáætlun 2007 - 2010 og átti að verja til verksins 39 mkr á þeim tíma. Nefndin bendir á að vegur að skíðasvæðinu í Tindastóli sé sá eini á norðurlandi sem ekki hefur verið lagður bundnu slitlagi.

Einnig lýsir nefndin yfir þungum áhyggjum af slæmu ástandi malarvega í sveitarfélaginu og telur brýnt að auka fjármagn til viðhalds þeirra.

Að lokum ályktar nefndin að það sé mikið öryggismál fyrir vegfarendur á Skagastrandarvegi nr. 74 að hann verði endurbyggður hið fyrsta frá Hringvegi að Höskuldsstöðum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 313. fundur - 09.04.2014

Afgreiðsla 97. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 313. fundi sveitarstjórnar 9. apríl 2014 með níu atkvæðum