Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar
Dagskrá
1.Tillaga þjónustusviðs Vegagerðarinnar um lækkun hámarkshraða á Sauðárkróksbraut 75-03, 04 og 05
Málsnúmer 2105280Vakta málsnúmer
2.Fundur um skilavegi og fylgiskjal um ástand - Skagafjörður
Málsnúmer 2108106Vakta málsnúmer
Samband íslenskra sveitarfélaga og Vegagerðin boðuðu til sameiginlegs fjarfundar 20.8.2021 til að kynna niðurstöður starfshóps um skil á þjóðvegum í þéttbýli til sveitarfélaga. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar frá Vegagerðinni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga en í vinnuhópi (faghópi) um aðferðafræði við mat á ástandi vega og framkvæmd ástandsmats áttu sæti fulltrúar frá sömu aðilum en EFLU verkfræðistofu falin umsjón með vinnu hópsins.
Skýrsla starfshópsins liggur nú fyrir, ásamt skýrslu vinnuhóps (faghóps) um ástandsmat þeirra þjóðvega í þéttbýli sem teknir voru til skoðunar.
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs gerði grein fyrir dagskrá fundarins og kynnti ástandsskoðun á fyrirhuguðum skilavegi á Hofsósi ásamt mati á kostnaði við að koma veginum í skilahæft ástand.

3.Samstarf um uppbyggingu fjölskyldugarðs 2020 - Freyjugarður
Málsnúmer 2006004Vakta málsnúmer
Farið yfir stöðu málsins. Áætlun var um að setja upp aparólu á leikvallarsvæði í Túnahverfi, svæði U-3.1 samkvæmt núgildandi aðalskipulagi. Athugasemdir við uppsetninguna komu frá íbúum og var sótt um leyfi til uppsetningar leiktækja til skipulags- og byggingarnefndar. Leyfið fékkst frá nefndinni á fundi 25.8.2021.
Vegna athugasemda íbúa á svæðinu leggur umhverfis- og samgöngunefnd til að frekari áform um skipulagningu fjölskyldugarðs verði vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
Sviðssjóri kynnti áform um uppsetningu aparólu sem Kiwanisklúbburinn Freyja hefur gefið til verkefnisins. Ákveðið er að færa staðsetningu rólunnar frá fyrstu tillögu austar á svæðið. Aparólan verður sett upp á næstunni. Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar þessu framtaki hjá Freyjunum.

4.Sorphreinsun í Skagafirði - útboð 2021 - Efla
Málsnúmer 2011092Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkti á 973. fundi 07.07.2021 að fela sveitarstjóra að ganga til viðræðna við forsvarsmenn Flokku ehf. um möguleg kaup Sveitarfélagsins Skagafjarðar á móttökustöð fyrirtækisins að Borgarteig 12.
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu málsins.

5.Fundagerðir Hafnasambands Ísl 2021
Málsnúmer 2101005Vakta málsnúmer
Fundargerðir nr. 432, 433, 434 og 436 frá stjórn Hafnarsambands Íslands lagðar fram til kynningar.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.

6.Skoðun á Dráttarbát Bruiser
Málsnúmer 2108128Vakta málsnúmer
Útboð á kaupum dráttarbáts fyrir Skagafjarðarhafnir fór fram í sumar sem leið. Að útboði loknu fóru hafnarstjóri og starfsmenn hafnarinnar og skoðuðu bát frá lægstbjóðanda.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri fór yfir skýrslu sem unnin var eftir ferðina. Báturinn þykir vænlegur kostur fyrir verkefnið og hafnarsvið Vegagerðarinnar og Ríkiskaup hafa samþykkt kaupin. Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar þessum áformum og óskar Skagafjarðarhöfnum til hamingju með áformin.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri fór yfir skýrslu sem unnin var eftir ferðina. Báturinn þykir vænlegur kostur fyrir verkefnið og hafnarsvið Vegagerðarinnar og Ríkiskaup hafa samþykkt kaupin. Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar þessum áformum og óskar Skagafjarðarhöfnum til hamingju með áformin.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
7.Norðurgarður
Málsnúmer 2108160Vakta málsnúmer
Búið er að ganga að tilboði frá Víðimelsbræðrum ehf. Verkið felst í því að tekinn verður upp þvergarður sem gerður var árið 2006 og Norðurgarður verður lengdur um 30 m. Breytingin mun gjörbreyta aðkomu stórra skipa inn í höfnina og auka öryggi þeirra.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri fór yfir teikningar af breytingum og lengingu. Áætlað er að verkið hefjist núna í september og verklok eru áætluð fyrir næstu áramót.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri fór yfir teikningar af breytingum og lengingu. Áætlað er að verkið hefjist núna í september og verklok eru áætluð fyrir næstu áramót.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
8.Breyting á hafnarreglugerð 2021
Málsnúmer 2109020Vakta málsnúmer
Vegna fyrirhugaðra kaupa á dráttarbát og til að auka öryggi innan hafnanna er nauðsynlegt að breyta hafnarreglugerð Skagafjarðarhafna.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri fór yfir breytingar á hafnarreglugerðinni og útskýrði hvaða áhrif breytingarnar hafa í för með sér.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri fór yfir breytingar á hafnarreglugerðinni og útskýrði hvaða áhrif breytingarnar hafa í för með sér.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
9.Skagafjarðarhafnir, breyting á hafnarreglugerð 2021
Málsnúmer 2109188Vakta málsnúmer
Til að auka öryggi innan Skagafjarðarhafna og með tilkomu nýs dráttarbáts telur hafnastjóri nauðsynlegt að breyta 8. grein hafnarreglugerðar B_nr.1040_2018.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri kynnti breytingar á hafnarreglugerðinni og breytingin lögð fram til afgreiðslu og samþykkt.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri kynnti breytingar á hafnarreglugerðinni og breytingin lögð fram til afgreiðslu og samþykkt.
Dagur Þór Baldvinsson hafnarstjóri sat þennan lið.
10.Gránumóar - stækkun námusvæðis - aðalskipulag athugasemd
Málsnúmer 2109105Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs hefur sent athugasemd á hönnun nýs aðalskipulags vegna námusvæðis.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir þessar tillögur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs um breytingar námusvæðis í nýju aðalskipulagi.

11.Hofsós aðalskipulag athugasemdir, gámasvæði og flokkunarstöð.
Málsnúmer 2109106Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs hefur sent athugasemd á hönnun nýs aðalskipulags vegna gámasvæðis og flokkunarstöðvar í Hofsósi.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir þessar tillögur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs um fyrirhugað gámasvæði og flokkunarstöð á Hofsósi í nýju aðalskipulagi.

12.Skógarhlíð - stígakerfi athugasemdir vegna aðalskipulags.
Málsnúmer 2109133Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs hefur sent athugasemd á hönnun nýs aðalskipulags vegna stígakerfis í Skógarhlíðinni.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir þessar tillögur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs um skilgreiningu stíga í Sauðárgili og Skógarhlíð í nýju aðalskipulagi.

13.Garðlönd í Varmahlíð
Málsnúmer 2108259Vakta málsnúmer
Óskað hefur verið eftir landi undir garðlönd í Varmahlíð. Lagt er til að svæðið vestast á túni sunnan Reykjarhóls skammt austan sumarbústaða verði tekið undir garðlandið.
Samþykkt að þetta svæði verði nýtt undir garðlönd. Sviðsstjóra falið að láta gera garðinn kláran fyrir veturinn. Einnig er sviðsstjóra falið að láta gera reglur um umgengni um svæðið sem kveða á um hverjar skyldur sveitarfélagið hefur gagnvart notendum. Hver notandi skal sækja skriflega um að fá notkun að svæðinu og undirrita samninng þar um.
Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa er falið að gera könnun á áhuga fólks á samskonar garðlöndum á Hofsósi og á Sauðárkróki.
Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat þennan lið.

Fundi slitið - kl. 12:45.
Rúna Ásmundsdóttir deildastjóri hjá Vegagerðinni kynnti skýrslu um umferðaröryggi í Skagafirði.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Rúnu fyrir góða yfirferð á skýrslunni.
Tillaga Vegagerðarinnar um breytingar á hámarkshraða við Sauðárkrók rædd og samþykkt óbreytt eins hún er lögð fram og málinu vísað aftur til sveitarstjórnar.