Íþróttamiðstöðin í Varmahlíð auglýsir eftir kvenkyns starfsmanni í 60% starf frá 1. september nk.
Í starfinu felst meðal annars baðvarsla, þrif og afgreiðslustörf.
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um næstu helgi. Keppt verður í 16 greinum á mótinu og er skráning góð. Fjölbreytt afþreyingardagskrá verður í boði fyrir alla gesti mótsins jafnt sem heimamenn.
Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í búsetu fatlaðs fólks. Í starfinu felst að aðstoða fatlaða einstaklinga við allar athafnir daglegs lífs, persónulegar og félagslegar. Þjónustan er veitt inni á heimili hvers og eins og utan þess þegar við á hverju sinni.
Stjórnsýslu- og fjármálasvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða fjölhæfan og metnaðarfullan einstakling í starf verkefnastjóra í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum.