Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Freyjugata Sauðárkróki - umsókn um lóð - Freyjugötureitur
Málsnúmer 1905113Vakta málsnúmer
2.24. unglingalandsmót UMFÍ 2023
Málsnúmer 2110015Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að samstarfssamningi um Unglingalandsmót UMFÍ 2023 á Sauðárkróki, milli UMFÍ, UMSS og Skagafjarðar.
Byggðarráð gerir athugsemdir nokkur atriði í samningnum s.s. vegna rafmagnsmála og sorpmála, og felur sveitarstjóra að koma því á framfæri við samningsaðila.
Byggðarráð gerir athugsemdir nokkur atriði í samningnum s.s. vegna rafmagnsmála og sorpmála, og felur sveitarstjóra að koma því á framfæri við samningsaðila.
3.Beiðni um umsögn um umsókn um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað - Bjórsetur Íslands-brugghús slf
Málsnúmer 2302041Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf dagsett 6. febrúar 2023 frá embætti sýslumannsins á Suðurlandi, úr máli 2023-003547. Óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Bjórseturs Íslands - brugghús slf., kt. 530314-0810, um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað á Hólum í Hjaltadal, F214-2751. Um er að ræða umsókn um leyfi til að selja áfengi sem er að rúmmáli minna en 12% af hreinum vínanda. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir frá Brunavörnum Skagafjarðar, byggingarfulltrúa Skagafjarðar og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsókn Bjórseturs Íslands - brugghús slf.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsókn Bjórseturs Íslands - brugghús slf.
4.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61 2003 (gjaldtaka o.fl.)
Málsnúmer 2302216Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 21. febrúar 2023 þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 37/2023, "Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka o.fl.)". Umsagnarfrestur er til og með 06.03.2023.
5.Samráð; Frumvarp til laga um þjónustustofnun á sviði menntamála
Málsnúmer 2302245Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. febrúar 2023 þar sem mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 38/2023, "Frumvarp til laga um þjónustustofnun á sviði menntamála". Umsagnarfrestur er til og með 10.03.2023.
6.Samráð; Breyting á kosningalögum
Málsnúmer 2302254Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. febrúar 2023 þar sem dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 42/2023, "Breyting á kosningalögum". Umsagnarfrestur er til og með 12.03.2023.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar tillögu að breytingum á kosningalögum sem varða vanhæfisákvæði kjörstjórnarmanna en gildandi kosningalög ollu sem kunnugt er miklum vandræðum við mönnun kjörstjórna fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju sinni með að leitast sé við að skýra betur ákvæði er varða kostnað við sveitarstjórnarkosningar og aðrar kosningar. Nauðsynlegt er að fyrirhuguð reglugerð sem kveður á um fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga vegna hlutverks þeirra við framkvæmd annarra kosninga svo og um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga vegna þeirra verkefna sem Þjóðskrá Íslands fer með vegna framkvæmdar kosninga, verði unnin í nánu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.

7.Bókun stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2302205Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 20. febrúar 2023 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kynnt er bókun stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 17. febrúar 2023. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga eru aðgengilegar á heimasíðu samtakanna https://orkusveitarfelog.is/fundargerdir/
8.Yfirfærsla starfsleyfis - til upplýsinga
Málsnúmer 2302237Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 10. febrúar 2023 frá Umhverfisstofnun til Hólaskóla - Háskólans á Hólum varðandi yfirfærslu starfsleyfis til framleiðslu á bleikju við Hof í Hjaltadal frá FISK Seafood yfir á Hólaskóla. Starfsleyfi FISK Seafood ehf. var gefið út 5. nóvember 2020 og gildir til 5. nóvember 2036.
Fundi slitið - kl. 15:18.
Arnór tók þátt í fundinum undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Sólborg Borgarsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið og Guðlaugur Skúlason sat fundinn í hennar stað.