Stóra upplestrarkeppni 7. bekkja grunnskólanna í Skagafirði verður í bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki þriðjudaginn 10. mars kl 17.
Nánar
Allir velkomnir !
Skemmtilegt samstarf er á milli 9. bekkjar Varmahlíðarskóla og hestafræðideildarinnar í Háskólanum á Hólum. Nemendur 9. bekkjar fara á nokkra daga námskeið til Hóla og gerast nemendur hjá nemendum hestadeildarinnar.
Sturlungulestur verður í Áskaffi sunnudaginn 1. mars kl 10:30 - 12:00. Nú er það Sturlu saga sem verður lesin.
Allir eru velkomnir hvort sem er til að lesa eða bara að hlusta !
Lestur úr Sturlungu sunnudaginn 22. febrúar í Áskaffi kl 10:30 - 12. Nú verður lesinn Haukdælaþáttur.
Allir velkomnir, hvort sem er til að lesa eða hlusta !
Því miður viðrar ekki til skíðaiðkunar í dag og hátíðin á skíðasvæði Tindastóls hefst því ekki fyrr en í fyrramálið en ágætis spá er fyrir laugardaginn
Veitu- og framkvæmdasvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann við Eignasjóð. Starfshlutfallið er 100% og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.